Fótbolti

Lærisveinar Ólafs upp að hlið Bröndby

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafur Kristjánsson er að gera góða hluti með Randers þessa dagana.
Ólafur Kristjánsson er að gera góða hluti með Randers þessa dagana. vísir/getty
Hannes Þór Halldórsson og félagar í Randers undir stjórn Ólafs Kristjánssonar unnu 2-1 sigur á Viborg fyrr í dag en með sigrinum komst Randers upp að hlið Bröndby í 3. sæti deildarinnar.

Var þetta þriðji sigur Randers í röð sem með sigrinum lyfti sér upp að hlið Bröndby en Kaupmannahöfn virðist vera í sérflokki með níu stiga forskot á toppnum.

Bröndby með Hjört Hermannsson innanborðs varð af mikilvægum stigum í 0-1 tapi gegn OB Odense á útivelli í dag.

Hjörtur lék allan leikinn í dag í vörninni hjá Bröndby en þetta var aðeins annar sigur Odense í síðustu tólf deildarleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×