Fótbolti

Sjáðu markið ótrúlega sem tryggði Bayern stigin þrjú

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bayern Munchen vann góðan sigur á Darmstadt, 1-0, í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Þýskalandsmeistararnir voru í töluverðum vandræðum að koma boltanum í netið í leiknum en þegar það gekk, þá var um ekkert smá mark að ræða. Douglas Costa fékk boltann fyrir utan teiginn, lagði hann fyrir sig á vinstri og þrumaði honum í netið, sláin inn.

Markið kom tuttugu mínútur fyrir leikslok og var það eina markið sem leit dagsins ljós. Bayern Munchen er í efsta sæti deildarinnar með 36 stig en Darmstadt í því neðsta með 8 stig.

Hér að ofan má sjá markið ótrúlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×