Fótbolti

Ronaldo kláraði heimsmeistaratitilinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ronaldo stóð fyrir sínu.
Ronaldo stóð fyrir sínu.
Real Madrid hafði betur gegn Kashima Antlers, 4-2, í úrslitaleiknum á HM-félagsliða í dag en leikurinn fór fram  í Japan.

Leikurinn var virkilega fjörugur og spennandi en það var Karim Benzema sem kom Real Madrid yfir eftir um tíu mínútna leik. Gaku Shibasaki skoraði því næst tvö mörk fyrir Kashima Antlers og í upphafi síðari hálfleiksins var staðan orðin 2-1 fyrir Kashima Antlers.

Þá var komið að besta fótboltamanni heims, Cristiano Ronaldo en hann jafnaði metin á 60. mínútu og var staðan 2-2 eftir venjulegan leiktíma.

Ronaldo skoraði síðan tvö mörk í framlengingunni og fullkomnaði þrennuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×