Innlent

Óska ráðgefandi álits og að saksóknara verði gerð réttarfarssekt

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Björn Þorvaldsson í dómsal áður en málflutningur hófst.
Björn Þorvaldsson í dómsal áður en málflutningur hófst. Vísir/Anton
Verjendur í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis fóru fram á það í gær að óskað yrði eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins varðandi túlkun á ákvæði í lögum um verðbréfaviðskipti. Munnlegur málflutningur um efnið fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Áður hefur verið sakfellt fyrir brot gegn lagagreininni sem rataði í íslensk lög gegnum Evróputilskipun. Telja verjendur að fyrri niðurstöður Hæstaréttar séu á skjön við þann skilning sem lá að baki ákvæðinu og því er óskað eftir ráðgefandi áliti.

Verjendur í dómssal í gær þegar Símon Sigvaldason dómari mætti í dómssal.Vísir/Anton Brink
Í málinu eru Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, ákærðir fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik. Að auki eru þrír fyrrverandi starfsmenn bankans einnig ákærðir.

Áður hafa starfsmenn Kaupþings og Landsbankans verið sakfelldir fyrir sams konar brot. Í máli verjenda kom fram að uppi væri réttmætur vafi um fordæmisgildi dómanna meðal annars í ljósi þess að tveir dómenda af fimm í Landsbankamálinu áttu hlutabréf í bankanum.

Í ræðu sinni sagði Björn Þorvaldsson saksóknari að Reimari Péturssyni, verjanda Jóhannesar Baldurssonar og formanni Lögmannafélagsins, væri „uppsigað“ við Hæstarétt og með málflutningi sínum vægi hann með „ómaklegum og ómerkilegum“ hætti að dómstólnum.

Verjendur brugðust ókvæða við þessum orðum og lét Reimar færa í þingbók að hann færi fram á að Birni yrði gerð réttarfarssekt sökum þessa ummæla.

Úrskurður varðandi ráðgefandi álitið verður kveðinn upp í komandi viku.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×