Innlent

Margra vikna rannsókn leiddi til handtöku fimm manna

Snærós Sindradóttir skrifar
Mennirnir eru grunaðir um að flytja inn fjögur kíló af amfetamíni og töluvert magn af sterum.
Mennirnir eru grunaðir um að flytja inn fjögur kíló af amfetamíni og töluvert magn af sterum. Vísir/Hari
Rannsókn lögreglu á innflutningi fimm manna á fjórum kílóum af amfetamíni og miklu magni af sterum var umfangsmikil og hafði staðið yfir í nokkrar vikur þegar mennirnir voru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Eins og fram kom í tilkynningu frá lögreglu í gær var einum manninum sleppt en gæsluvarðhald hinna fjögurra mannanna rennur út í dag.

Mennirnir eru allir fæddir á bilinu 1982 til 1993. Tveir mannanna eru háskólanemar en í starfsnámi hjá líftæknifyrirtæki í Reykjavík. Lögreglan rannsakaði meðal annars vinnuaðstöðu mannanna hjá fyrirtækinu. Einn er fasteignasali, einn er sölumaður fæðubótarefna. Þá er fimmti maðurinn starfsmaður hjá póstdreifingarfyrirtæki. Heimildir Fréttablaðsins herma að rannsókn lögreglu beinist að því hvort efnin hafi verið send hingað til lands í gegnum það tiltekna póstdreifingafyrirtæki og starfsmanni fyrirtækisins verið gert að veita efnunum viðtöku. Mennirnir fimm eru allir íslenskir ríkisborgarar en einn þeirra er af erlendu bergi brotinn.

Eins og áður segir hafði lögregla fylgst með mönnunum um nokkurra vikna hríð. Ekki fæst uppgefið hvernig lögregla komst á snoðir um málið en heimildir Fréttablaðsins herma að í aðgerðum lögreglu hafi efnunum meðal annars verið skipt út fyrir gerviefni og sendingunni síðan leyft að fara áfram til viðtakanda. Þá hafi upptökutæki eða staðsetningartæki verið komið fyrir í sendingunni svo lögregla gæti fylgst með hvert henni var ætlað að fara.

Að minnsta kosti tveir mannanna fimm hafa keppt í vaxtarrækt en í tilkynningu frá lögreglunni kom fram að töluvert magn af sterum hefði verið í sendingunni.

Gæsluvarðhald mannanna rennur út í dag. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi eins mannanna, segist ekki vilja tjá sig um málið á meðan það er enn í rannsókn. „Ég bind þó vonir við það að gæsluvarðhaldsvist verði ekki framlengd,“ segir Sveinn.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×