Innlent

Lögreglan lýsir eftir Ólafi Erni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ólafur Örn Arnarson.
Ólafur Örn Arnarson. mynd/lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ólafi Erni Arnarsyni. Ólafur er 34 ára, rúmlega 190 sentimetrar á hæð, um 105 kíló og sköllóttur.

Hann er klæddur í dökkbláa Carhart úlpu, bláar gallabuxur, með mosabrúna 66 gráður norður húfu og í svörtum skóm. Hann er líklega með rauðan bakpoka.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Ólafur hafi farið heimili sínu í efri byggðum Kópavogs snemma í morgun, miðvikudag, og ekkert hafi heyrst til hans síðan þá.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ólafs eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.

Uppfært: 

Ólafur er kominn í leitirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×