Borgin bannar eigendum að færa hús í Skuggahverfinu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. desember 2016 07:00 Húsið sem styrinn stendur um er núna að Vegamótastíg 1. það verður ekki flutt. vísir/gva
Fulltrúar meirihlutans auk Framsóknarmanna í borgarstjórn synjuðu eigendum gamalla húsa á samliggjandi lóðum við Vegahúsastíg 1 og Klapparstíg 19 um deiliskipulagsbreytingu sem falið hefði í sér sex nýjar íbúðir á lóðunum. Í umsögn skipulagsfulltrúa borgarinnar kemur fram að lóðareigendurnir hefðu að ósk borgarinnar lagt fram nýja tillögu um skipulag lóðanna eftir fund í lok nóvember. Þar var gert ráð fyrir að halda bæði í steinbæ á Klapparstígslóðinni og timburhús frá 1889 á Veghúsastíg 1 en færa það ofar í lóðina. Þá átti að auka magn nýbygginga um 300 fermetra, úr 810 fermetrum í 1.115. Nýbygging yrði reist fjær lóðarmörkum en áður hafi verið gert ráð fyrir. „Sá hluti nýbygginga, sem gert var ráð fyrir að byggja við lóðarmörk Klapparstígs 17, var færður að lóðarmörkunum, en það hefði, ásamt hækkun bygginganna, í för með sér talsverða aukningu á skuggavarpi á lóðina Klapparstíg 17. Tillaga þessi tekur ekki nægilegt mið af gömlu húsunum sem gert er ráð fyrir að varðveita og er byggingarmagn samkvæmt breytingartillögu of mikið fyrir þessa lóð,“ segir í umsögn skipulagsfulltrúans.Tillaga arkitekta Arkís um nýbyggingar á horni Veghúsastígs og Klapparstígs.Mynd/ArkísBorgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði gegn því að ósk lóðareigendanna um nýtt skipulag yrði hafnað. „Húsið við Veghúsastíg 1 var metið ónýtt árið 2011. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mat húsið óíbúðarhæft í byrjun árs 2012 og Minjastofnun affriðaði húsið á árinu 2014 vegna bágs ástands þess,“ bentu sjálfstæðismenn á í bókun og minntu á að Minjastofnun gerði ekki athugasemdir við að gamla timburhúsið yrði rifið. Eðlilegt væri að fallast á deiliskipulagsbreytinguna. „Gamla timburhúsið við Veghúsastíg 1 hefur ótvírætt varðveislugildi,“ bókaði hins vegar meirihlutinn í borgarstjórn ásamt fulltrúum Framsóknarflokks. Ekki mætti „rífa það eða fjarlægja“. Málið á sér allnokkra sögu sem hófst árið 2008 þegar lóðirnar tvær voru sameinaðar í eina. Samkvæmt deiliskipulagi frá 2004 mátti rífa steinbæinn á Klapparstíg 19 sem er sá síðasti sinnar tegundar í Skuggahverfinu. „Árið 2009 var lögð fram fyrirspurn um nýbyggingu með sjö íbúðum og með þeirri tillögu var gert ráð fyrir að rífa bæði steinbæinn og timburhúsið,“ segir í upprifjun skipulagstjóra. Þessu hafnaði borgin á sínum tíma. Eins og fyrr segir eru lóðareigendurnir nú tilbúnir að varðveita gamla húsið en færa það austar á lóðina. „Þó að timburhúsið sé illa farið, væri æskilegt að gera við það eða eftir atvikum endurbyggja það á núverandi stað, helst á upphaflegum undirstöðum,“ segir hins vegar í umsögn skipulagsstjóra. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Albert sýknaður Innlent Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Innlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Innlent Efast um að málinu verði áfrýjað Innlent Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Fleiri fréttir Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Rannsaka tengsl sköpunargáfu og ADHD Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Efast um að málinu verði áfrýjað Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Albert sýknaður Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Riddari kannana mætir í Samtalið Sjá meira