Innlent

Margir pirraðir á plássleysi fyrir gangandi vegfarendur á Laugavegi

Nína Hjördís Þorkelsdóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa
Í kvöld var mikill fjöldi fólks samankominn í miðbænum. Þar af var mikill fjöldi á Laugaveginum að sinna jólaerindum síðasta kvöldið fyrir jól.

Einhverjir voru ósáttir við að ekki hefði verið meira pláss fyrir gangandi vegfarendur á götunni vegna bílaumferðar og tjáðu þeir sig á samfélagsmiðlum í kvöld. Sjá má nokkrar athugasemdir hér fyrir neðan.

Einungis neðri hluti Laugavegar og Skólavörðustígs eru lokaðir fyrir bílaumferð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×