Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ætlar ekki að veita neinum flokki stjórnarmyndunarumboðið yfir jóladagana og segist ekki vera byrjaður að íhuga utanþingsstjórn. Rætt verður við forseta í fréttum Stöðvar tvö.

Einnig verður rætt við formenn Kennarasambands Íslands og Bandalags háskólamanna en kennarar hafa ákveðið að höfða mál á hendur íslenska ríkinu út af nýsamþykktum lögum um jöfnun lífeyrisréttinda á opinberum og almennum vinnumarkaði.

Þá verðum við í beinni í fréttatímanum frá jólastemningunni í miðbæ Reykjavíkur en búast má við því að jólaverslunin nái hámarki í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×