Innlent

Eldur í bílskúr við Nýbýlaveg

Gissur Sigurðsson skrifar
Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Vísir/Stefán
Slökkvilið var kallað úr klukkan rúmlega sex í morgun eftir að eldur kviknaði í bílskúr við Nýbýlaveg í Kópavogi. Töluverðan svartan reyk lagði frá skúrnum, en eldurinn var slökktur á skömmum tíma.

Skúrinn var svo reykræstur en eldsupptök liggja ekki fyrir.

Reykskynjari í skúrnum vakti heimilisfólkið, sem kallaði strax á slökkviliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×