Viðskipti innlent

Íbúð í miðbænum næstum tvöfaldast á fimm árum

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Íbúð í miðbæ Reykjavík hefur næstum tvöfaldast í verði á síðustu fimm árum. Hagfræðingur hjá Landsbankanum segir innistæðu fyrir miklum hækkunum á fasteignaverði og gerir ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram.

11% hækkun árið 2016

Síðustu fimm ár hefur fasteignaverð hér á höfuðborgarsvæðinu hækkað jafnt og þétt. 2011 hækkaði það um 5 prósent, 7 prósent 2012, sex prósent 2013, átta prósent 2014 og níu prósent 2015. Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að hækkunin í ár verði tæp 11 prósent en það yrði mesta hækkun frá árinu 2006.

Á síðustu fimm árum hefur fjölbýli í miðborg Reykjavíkur hækkað um 93 prósent. Þetta þýðir að íbúð sem keypt var á þessu svæði 1. janúar 2011 á 25 milljónir króna hefur næstum tvöfaldast í verði, og kostar rúmar 48 milljónir í dag.

Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir fasteignaverð hafa hækkað hraðar síðustu mánuði en gert var ráð fyrir. Almennur uppgangur í samfélaginu og kaupmáttaraukning útskýri þessar hækkanir.

Er innistæða fyrir öllum þessum hækkunum?

„Já enn sem komið er held ég að það sé töluverð innistæða fyrir þessum hækkunum. Það náttúrulega skiptir mjög miklu máli í þessu sambandi að það er væntanlega töluverður skortur á framboði, það vantar fleiri íbúðir inn á markaðinn,” segir Ari.

Heilbrigðari markaður en áður

Fyrstu merki um fasteignabólu séu hins vegar ekki komin fram.

„Við erum ekki að sjá það eins og á árunum fyrir hrun þar sem að þetta var drifið áfram mikið með skuldsetningu. Við erum með allt aðrar aðstæður í skuldsetningu núna. Fólk hefur frekar verið að borga upp lán, þannig að eigið fé í öllum þessum massa sem fólk er að eignast er miklu meira heldur en áður. Að því leyti er þetta miklu heilbrigðara,” segir Ari.

Þrátt fyrir skort á framboði af húsnæði segir Ari að töluvert meira sé í byggingu en verið hefur. Því sé von á áframhaldandi hækkunum næstu ár.

„Ég held að næsta ár líti álíka út. Við spáum til dæmis 10 prósent hækkun á milli 2016 og 2017 og svo fari að draga frekar úr. En allt í allt, þá held ég að þróunin sem að hefur verið síðustu ár hún kemur til með að halda áfram,” segir Ari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×