Innlent

Björgunarsveitin á Dalvík bjargaði hundi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Voffi fannst að lokum.
Voffi fannst að lokum. Vísir/Skjáskot
Það er ljóst að björgunarsveitirnar standa ekki einungis í ströngu við að bjarga mannfólki sem týnist út í óbyggðum.

Björgunarsveitin á Dalvík greindi frá því á Facebook síðu sinni í gær að sveitin hefði hjálpað til við að finna hund sem daginn áður hafði týnst eftir að hafa orðið fyrir bíl. Eigendur ásamt fleirum höfðu leitað alla nóttina án árangurs.

Björgunarsveitin notaði því dróna til þess að finna hundinn og fannst hann einungis hálftíma síðar eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×