Innlent

Minntust þeirra sem tóku eigið líf

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Pieta Ísland sjálfsvígsforvarnarsamtök stóðu fyrir Vetrarsólstöðugöngu í gærkvöldi í minningu þeirra sem tóku eigið líf. Gengin var blysför að vitanum við Skarfagarð þar sem aðstandendur rituðu nöfn ástvina sinna vegg vitans.

Frú Eliza Reid, verndari Pieta samtakanna flutti ávarp og Högni Egilsson og Ellen Kristjánsdóttir, ásamt dætrum, spiluðu ljúfa tóna.

Nöfnin, rituð af ástvinahöndum, munu standa á Vitanum yfir jól og áramót til minningar og sem tákn um von og samstöðu með öllum þeim sem lifa í myrkri þungra hugsana og uppgjafar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×