Viðskipti innlent

Þorskur seldur til 27 landa

Svavar Hávarðsson skrifar
Verðmætasta tegund okkar fer til 27 landa.
Verðmætasta tegund okkar fer til 27 landa. vísir/stefán
Útflutningur á ferskum þorski hefur aukist um rúm 25 prósent á tveimur árum. Þetta kemur fram við skoðun Landssambands smábátaeigenda á tölum fyrir fyrstu 10 mánuði ársins í samanburði við sama tímabil árið 2014.

Á vefsíðu LS segir að útflutningurinn dreifist á 27 lönd í ár sem er tíu löndum fleiri en selt var til árið 2014. Fjórar þjóðir bera uppi 90 prósent viðskiptanna: Frakkland, Bandaríkin, Bretland og Belgía. Magn til þessara landa hefur tekið nokkrum breytingum á þessum tveimur árum.

Aukning hefur orðið á viðskiptum við Frakkland og Bandaríkin, en hlutdeild Breta og Belga hefur dregist saman. Hlutur Frakka hefur farið úr 38 prósentum í 49 og Bandaríkjanna úr 14 í 17 prósent.

Bretland hefur hins vegar fallið úr því að kaupa héðan fimmtung alls fersks þorsks í 14 prósent og sala til Belgíu fer úr 17 prósentum í tíu prósent. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×