Viðskipti innlent

Halldór Þorkelsson nýr framkvæmdastjóri Capacent

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Halldór Þorkelsson.
Halldór Þorkelsson.
Halldór Þorkelsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Capacent á Íslandi. Hann tekur við starfinu um áramót af Ingva Þór Elliðasyni.

Ingvi Þór hefur verið framkvæmdastjóri Capacent frá árinu 2008 og mun frá og með áramótum snúa sér að ráðgjafaverkefnum. Hann lætur af framkvæmdastjórastarfinu að eigin ósk.

Halldór lauk lögfræði við Háskola Íslands árið 1999 og hóf þá störf á tekju- og lagasviði fjármálaráðuneytisins.

Hann hóf störf hjá PricewaterhouseCoopers árið 2001 og hefur starfað þar síðan. Frá árinu 2004 hefur hann veitt ráðgjafasviði félagsins forstöðu og auk þess verið partner hjá PwC frá 2005.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×