Viðskipti innlent

Íslandsbanki greiðir 27 milljarða arðgreiðslu til ríkisins

Sæunn Gísladóttir skrifar
Með arðgreiðslunni nú, hafa samtals verið greiddir 37 milljarðar í arð á árinu 2016 til íslenska ríkisins.
Með arðgreiðslunni nú, hafa samtals verið greiddir 37 milljarðar í arð á árinu 2016 til íslenska ríkisins. Vísir/Vilhelm
Á aðalfundi Íslandsbanka þann 19. apríl síðastliðinn, fékk stjórn bankans heimild til að kalla til sérstaks hluthafafundar síðar á árinu þar sem tillaga um greiðslu arðs af hagnaði fyrri rekstrarára kynni að vera lögð fram. Á hluthafafundi í dag, þriðjudaginn 20. desember, var tekin ákvörðun um sérstaka greiðslu arðs að fjárhæð 27 milljarða króna til hluthafa fyrir árslok 2016. Íslenska ríkið er eini hluthafi Íslandsbanka og fer Bankasýsla Ríkisins með eignarhlutinn segir í tilkynningu.

Almennt viðmið bankans er að greiða 40 til 50 prósent af hagnaði í arð, en í apríl voru greiddir 10 milljarðar í arð til hluthafa sem samsvarar 50 prósent af hagnaði ársins 2015. Með arðgreiðslunni nú, hafa samtals verið greiddir 37 milljarðar í arð á árinu 2016 til íslenska ríkisins. 

Hagstæðari fjármagnsskipan

Mikil vinna hefur farið fram síðustu ár við endurskipulagningu á eignahlið efnahagsreiknings bankans. Endurskipulagningu á lánasafni er nú lokið, vanskilahlutfall fer lækkandi og hverfandi hluti endurskipulagðra lána fer aftur í vanskil. Þessi árangur setur bankann í flokk þeirra 25 prósent evrópskra banka sem hafa hvað lægst vanskilahlutföll.

Með arðgreiðslunni í dag er stigið stórt skref í átt að eðlilegri fjármagnsskipan á skuldahlið efnahagsreiknings bankans. Íslandsbanki hefur viðhaldið öflugum eiginfjár- og lausafjárhlutföllum til að takast á við möguleg áhrif vegna afléttingar hafta og áföllum í rekstarumhverfi. Skuldastaða íslenska ríkisins, fyrirtækja og heimila í landinu hefur stórbatnað á undanförnum árum og lög um skref til afléttingu fjármagnshafta hafa verið samþykkt.

Traust eiginfjárhlutföll og góð lausafjárstaða

Eiginfjárhlutfall bankans eftir arðgreiðsluna verður 24 prósent, en markmið bankans er að hlutfallið sé yfir 23 prósent sem er vel yfir 19,1 prósent eiginfjárkröfu Fjármálaeftirlitsins. Vogunarhlutfall verður 15,7 prósent, sem sýnir hóflega skuldsetningu og telst afar gott í samanburði við evrópska banka. Lausafjárstaða verður áfram traust og vel umfram innri viðmið og kröfur eftirlitsaðila.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×