Viðskipti innlent

Hefja beinar siglingar milli Þorkákshafnar og Rotterdam

Atli Ísleifsson skrifar
Einungis verður boðið upp á vöruflutninga á nýju siglingaleiðinni.
Einungis verður boðið upp á vöruflutninga á nýju siglingaleiðinni. Mynd/Smyril Line Cargo
Færeyska skipafélagið Smyril Line Cargo hefur ákveðið að hefja beinar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam í byrjun apríl 2017.

Félagið á og rekur einnig farþega- og vöruflutningaferjuna Norrænu, en í tilkynningu segir að engar breytingar séu fyrirhugaðar á rekstri Norrænu. Einungis verður boðið upp á vöruflutninga á nýju siglingaleiðinni.

„Fest hafa verið kaup á 19 þúsund tonna ferju sem tekur 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð og á hún að hefja siglingar í byrjun apríl 2017.

Flutningstíminn með Smyril Line Cargo milli Þorlákshafnar og Rotterdam verður sá stysti sem boðið verður upp á í sjóflutningum milli Íslands og Evrópu.

Ferjusiglingarnar munu stórauka umsvif í Þorlákshöfn og væntingar eru um að þær stuðli að enn frekari vexti og atvinnuuppbyggingu á svæðinu,“ segir í tilkynningu.

Mynd/Smyril Line Cargo





Fleiri fréttir

Sjá meira


×