Barkley bað Henderson afsökunar á tæklingunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2016 08:30
Ross Barkley, miðjumaður Everton, gerði sig sekan um mjög ljóta tæklingu í Bítlaborgarslagnum á móti Liverpool en slapp af einhverjum ástæðum með gult spjald. Flestir vildu fá rautt spjald á svona hættulega tæklingu en Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, slapp sem betur fer við alvarleg meiðsli. Stjórarnir Jürgen Klopp hjá Liverpool og Ronald Koeman hjá Everton, voru báðir á því að Ross Barkley hafi verið heppinn að fá ekki rauða spjaldið. „Kannski var Ross virkilega heppinn en Hendo var virkilega heppinn,“ sagði Klopp. Jordan Henderson var ekki að væla undan Ross Barkley eftir leikinn en sagði að miðjumaður Everton hafi beðið hann afsökunar á tæklingunni eftir leikinn. „Hann kom frekar seint inn í þessa tæklingu en ég þekki Ross vel og þetta er góður strákur,“ sagði Jordan Henderson eftir leikinn. Sigurmarkið hjá Sadio Mane í uppbótartíma átti örugglega sinn þátt í því að Henderson var kátur eftir leikinn þrátt fyrir að vera hársbreidd frá því að meiðast mjög illa. „Sem betur fer er ég í fínu lagi. Hann misreiknaði sig og hann baðst afsökunar á því eftir leikinn. Þetta var derby-leikur og þá skiptir engu máli inn á vellinum hvort menn eru vinir eða ekki,“ sagði Jordan Henderson. Liverpool vann leikinn 1-0, komst upp í annað sætið og minnkaði forskot Chelsea í sex stig.Viðbrögð Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, við tæklingunni. Jordan Henderson liggur sárkvalinn í grasinu.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra Körfubolti Dunne telur að Heimir gæti misst starfið strax Fótbolti Safnaði kröftum á Íslandi eftir brottrekstur Fótbolti Ótrúleg vika í lífi Teits Örlygs: „Skiljanleg viðbrögð“ Körfubolti Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Enski boltinn Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn Myndasyrpa: Hulin andlit en líka bros á blönduðu grasi FH-inga Fótbolti Dagur og Messi tilnefndir til verðlauna Fótbolti Svona mark sést bara á nokkurra ára fresti: „Algjörlega einstakt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Sjá meira