Fyrrum læknir í Auschwitz fyrir dóm Anton Egilsson skrifar 12. september 2016 22:33 Hubert Zafke var ekið í hjólastól inn í dómssal. Vísir/AFP
Hinn 95 ára gamli Hubert Zafke var leiddur fyrir rétt í Neubrandenburg í Þýskalandi í dag en hann er sagður hafa átt þátt í dauða um 3.600 manns í Auschwitz, stærstu fanga- og útrýmingarbúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Alls er talið að nasistar hafi drepið rúmlega milljón manns í Auschwitz búðunum en þar voru gyðingar í stórum hluta. Zafke starfaði sem læknir í Auschwitz búðunum á mánaðartímabili árið 1944 en þá eiga umrædd dráp að hafa átt sér stað. Á meðan Zafke var við störf í Auschwitz var hin hollenska Anna Frank þar í ánauð. Hún er hvað þekktust fyrir dagbók sem hún hélt meðan hún var í felum í Amsterdam, þegar Holland var hernumið af Þjóðverjum í seinni heimsstyrjöldinni. Í þrígang hefur Zafke verið boðaður til fyrirtöku í málinu en því hefur ávallt verið frestað sökum slæms heilsufars hans. Sama var upp á teningnum í dag en ákæra var þó lesin á hendur honum áður en réttarhöldunum var frestað fram í næstu viku. Zafke neitar öllum sökum í málinu en hann segist einungis hafa meðhöndlað særða hermenn meðan á dvöl hans stóð.
Tengdar fréttir Fangavörður nasista dæmdur fyrir morð Hann gegndi herþjónustu í Auschwitz þegar hann var átján ára, frá janúar 1942 til júní 1944. 18. júní 2016 07:00 Símritari sem starfaði í Auschwitz ákærður 91 árs kona hefur verið ákærð vegna gruns um aðild á morðum á 260 þúsund gyðingum í seinna stríði. 22. september 2015 11:46 Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Erlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Fleiri fréttir Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Sjá meira
Fangavörður nasista dæmdur fyrir morð Hann gegndi herþjónustu í Auschwitz þegar hann var átján ára, frá janúar 1942 til júní 1944. 18. júní 2016 07:00
Símritari sem starfaði í Auschwitz ákærður 91 árs kona hefur verið ákærð vegna gruns um aðild á morðum á 260 þúsund gyðingum í seinna stríði. 22. september 2015 11:46