Fótbolti

Messi hættur við að hætta?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi grét eftir tapið í Copa America þar sem hann klúðraði víti í vítaspyrnukeppninni.
Messi grét eftir tapið í Copa America þar sem hann klúðraði víti í vítaspyrnukeppninni. vísir/getty
Svo virðist vera sem Lionel Messi hafi endurskoðað þá ákvörðun sína að hætta að leika fyrir argentínska landsliðið.

Messi var mjög svekktur eftir tapið gegn Síle í Copa America á dögunum og sagði eftir leikinn að landsliðsferli hans væri lokið.

Hann var að tapa sínum fjórða úrslitaleik með Argentínu og virðist ekki ætla að vinna stóran titil með þjóð sinni.

Þar sem Messi er nú aðeins 29 ára gamall þá kom þessi yfirlýsing mjög á óvart.

Samkvæmt argentínska blaðinu La Nacion þá er Messi hættur við að hætta og verður aftur kominn í landsliðstreyjuna í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×