Erlent

Óttast mótmæli og loka Tahrir á fimm ára afmæli uppreisnar

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Byltingartorgsins vandlega gætt svo mótmælendur komist ekki að.
Byltingartorgsins vandlega gætt svo mótmælendur komist ekki að. vísir/EPA
Snemma í gær komu tugir manna saman á Tahrir-torgi í Kaíró og lýstu stuðningi við Abdel Fatta al Sissi forseta og stjórn hans.

Mikill viðbúnaður lögreglu og hers var á torginu, ekki vegna þessa hóps heldur af ótta við að þangað kæmi fólk til að mótmæla stjórn Sissis. Allar leiðir inn á torgið voru lokaðar.

Á þessu torgi hófst nefnilega fyrir fimm árum uppreisnin mikla, sem varð til þess að Hosni Mubarak, þáverandi forseti, hraktist frá völdum aðeins fáeinum vikum síðar.

Uppreisnin á Tahrir-torgi, sem hófst 25. janúar árið 2011, var einn stærsti viðburður arabíska vorsins svonefnda, sem um tíma virtist gefa vonir um miklar lýðræðisbreytingar víða í ríkjum norðanverðrar Afríku og Mið-Austurlanda.

Rúmlega ári síðar, í lok júní árið 2012, tók við lýðræðislega kjörin stjórn, sú fyrsta í sögu landsins. Forseti hennar var Muhammed Morsi, einn af forystumönnum Bræðralags múslima, pólitískrar íslamistahreyfingar sem lengst af hefur verið illa séð af stjórnvöldum í Egyptalandi.

Þeirri stjórn var steypt af stóli eftir aðeins tæpt ár, í júlí árið 2013, og Morsi forseti hnepptur í fangelsi ásamt þúsundum stuðningsmanna hans.

Sissi var í forystu egypska hersins sem steypti Morsi og hefur að miklu leyti tekið upp svipaða stjórnarhætti og hinn illa liðni Mubarak. Stjórnarandstæðingum er ógnað og gagnrýni fær helst ekki að heyrast opinberlega.

Í sjónvarpsávarpi á sunnudagskvöldið sagðist Sissi engu að síður halda í heiðri hugsjónir mótmælendanna á Tahrir-torgi fyrir fimm árum. Hann sagðist líta svo á að stjórnarbyltingin 2013, þegar herinn tók völdin á ný, hefði verið beint framhald af byltingunni 2011, þegar Mubarak hraktist frá völdum. Það hefði bara þurft að rétta stefnuna af.

„Egyptaland er í dag ekki sama land og það var í gær,“ sagði Sissi í ávarpinu. „Við erum í sameiningu að byggja upp nútímalegt, þróað og borgaralegt ríki sem hefur í heiðri gildi lýðræðis og frelsis.“

Annars staðar í Egyptalandi reyndu mótmælendur að efna til aðgerða, þar á meðal í borginni Alexandríu. Lögregla rak fólkið strax burt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×