„Þetta er endalaust vesen þarna,“ segir Þórir í samtali við Vísi.
Hann gerði stutt myndband úr myndskeiðum og myndum sem hann tók í gær.
Tveir menn sem Þórir fylgdust með fóru mjög nálægt sjónum og fengu mjög fljótt á sig öldu. Þeir sluppu þó vel.
„Það er oft eins og fólk sé alveg utan við sig. En þetta eru misstórir þessir sjóir og ég er ekkert hissa á því að fólki gangi illa að passa sig á þessu, sem að hafa kannski aldrei komið áður að sjó fyrir opnu hafi. Ég get ekki kallað það vitleysinga eins og margir gera.“