Innlent

Ákvörðun ógilt og vatnstaka í Vatnsendakrikum í umhverfismat

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Vatnsvinnslu Hafnfirðinga í Kaldárbotnum var jafnvel talið ógnað af vatnstöku Kópavogs og Reykjavíkur í Vatnsendakrika.
Vatnsvinnslu Hafnfirðinga í Kaldárbotnum var jafnvel talið ógnað af vatnstöku Kópavogs og Reykjavíkur í Vatnsendakrika. vísir/vilhelm
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um að aukin vatnsvinnsla Orkuveitu Reykjavíkur í Vatns­enda­krikum skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum hefur verið felld úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Orkuveitan kynnti Skipulagsstofnun í júní 2014 áform um að auka vatnsvinnslu í Vatnsenda­krikum í áföngum frá 190 lítrum á sekúndu upp í 300 lítra á sekúndu árið 2030. Samhliða sótti Vatnsveita Kópavogs um að auka sína vatnstöku í Vatnsendakrikum úr 210 lítrum á sekúndu í 350 lítra á sekúndu Skipulagsstofnun kvað upp úr með að framkvæmdirnar væru metnar hvor í sínu lagi og þyrftu ekki að fara í umhverfismat.

Hafnarfjarðarbær taldi framkvæmdina eiga að fara í mat á umhverfisáhrifum og kærði ákvörðun Skipulagsstofnunar. Bentu Hafnfirðingar á að á sömu skoðun væru Reykjavíkurborg, Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Orkustofnun og Umhverfisstofnun. Aukin vinnsla vatns í Vatnsenda­krikum gæti haft áhrif á vatnsvinnslu Hafnarfjarðar í Kaldárbotnum.

„Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekki beri einungis að líta til stakra framkvæmda að þessu leyti, heldur verði jafnframt að huga að samhengi þeirra við framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað og fyrirhugaðar eru á sama svæði, óháð því hvort um einn eða fleiri framkvæmdaraðila er að ræða,“ segir í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

„Að hafinni vinnslu beggja framkvæmdaraðila yrði samanlagt magn vatnstöku tæplega helmingi meira en matsskylt er. Að teknu tilliti til fyrri vinnslu Orkuveitu Reykjavíkur að auki er um ríflega tvöfalt magn vatnsvinnslu að ræða miðað við þau tölulegu viðmið sem lögð eru til grundvallar matsskyldu,“ segir úrskurðarnefndin. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×