Enski boltinn

Liverpool frumsýnir nýjan búning | Myndir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Daniel Sturridge í gamla búningnum.
Daniel Sturridge í gamla búningnum. vísir/getty
Liverpool frumsýndi í gær nýjan aðalbúning félagsins fyrir næstu leiktíð.

Liverpool verður áfram í búningum frá New Balance og var nýi búningurinn frumsýndur við mikla athöfn.

Það er ekki mikil breyting á búningnum. Sá nýi er rauður og gylltur. Sokkarnir eru líka rauðir með gylltu merki.

Jordan Henderson, Philippe Coutinho, Simon Mignolet, Jon Flanagan, Connor Randall og stelpurnar Gemma Bonner og Natasha Harding sáu um að sýna búninginn.

Ekki mikil breyting en gyllti liturinn setur svip á búninginn.vísir/getty
Coutinho er kátur með nýju treyjuna.vísir/getty
Að sjálfsögðu var hent í eina selfie.vísir/getty
Fyrirliðinn var silkislakur.vísir/getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×