Erlent

Segja árásarmennina hafa verið innblásna af hryðjuverkaárásunum í París

Atli ísleifsson skrifar
Árásarmennirnir komu á vélhjólum og voru vopnaðir handsprengjum og skotvopnum.
Árásarmennirnir komu á vélhjólum og voru vopnaðir handsprengjum og skotvopnum. Vísir/AFP
Lögregla í Jakarta í Indónesíu segir að hryðjuverkamennirnir sem réðust til atlögu í borginni í morgun hafi verið innblásnir af árásunum í París í nóvember síðastliðinn.

CNN greinir frá því að tíu manns hafi fallið í árásunum, þar af fjórir árásarmannanna. Lögregla grunar að hópur með tengsl við ISIS hafi staðið fyrir árásunum.

Röð sprenginga skók indónesísku höfuðborgina í morgun, auk þess að árásarmennirnir skutu á fólk. Árásirnar voru meðal annars gerðar í Sarinah verslunarmiðstöðinni, nálægt forsetahöll landsins, og við skrifstofur Sameinuðu þjóðanna.

Guardian greinir frá því að árásarmennirnir hafi komið á vélhjólum og verið vopnaðir handsprengjum og skotvopnum.

Sjónarvottar segir í samtali við AP að þrír menn hafi sprengt sjálfa sig í loft upp inni á Starbucks-stað og að tveir vopnaðir menn hafi ráðist inn á nálæga lögreglustöð. Einn lögreglumaður er sagður hafa fallið.

Joko Widodo, forseti Indónesíu, segir ljóst að um hryðjuverkaárás sé að ræða. Segir hann að lögregluyfirvöld hafi náð tökum á ástandinu. Hvatti hann íbúa höfuðborgarinnar að halda ró sinni.

Mörg hundruð lögreglumenn voru á götum borgarinnar og kom nokkrum sinnum til skotbardaga en þó er enn ekki vitað hverjir standa að baki árásunum.

Indónesía hefur þó verið á hæsta viðbúnaðarstigi um nokkurn tíma vegna hótana frá ISIS samtökunum um að gera árásir í landinu, en um tvö hundruð Indónesar eru taldir hafa farið til Sýrlands til að ganga í samtökin.

Al Jazeera greinir frá því að hollenskur starfsmaður Sameinuðu þjóðanna sé í hópi hinna látnu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×