Skoðun

Aðventukveðja frá Bolungarvík

Einar Jónatansson skrifar
Aðventan, undirbúningstími jólanna er gengin í garð. Hún er tími jólaljósanna, kærkomin mitt í mesta skammdeginu. Hún er jafnframt tími hefða, sem tengjast undirbúningi jólanna og því að við erum kristin þjóð. Á margan hátt kallar aðventan fram það góða í manninum. Við verðum gjarnan næmari á aðstæður þeirra sem eiga um sárt að binda, ekki síst þegar um ástvinamissi er að ræða, eða þá þegar alvarleg veikindi knýja dyra. Þá er eins og styttra sé í náungakærleikann og við erum tilbúnari til að sýna stuðning okkar í verki. Í minni samfélögum kristallast þetta í samstöðu íbúanna, og viljanum til að létta undir með þeim sem eru hjálpar þurfi.

Fyrir rúmu ári síðan fæddist bolvískri móður og ísfirskum föður drengur, sem í sjálfu sér er ekki fréttnæmt. Litli drengurinn hefur hins vegar barist við erfiðan sjúkdóm. Löng sjúkrahúsdvöl fjarri heimahögum hefur valdið foreldrunum ungu miklum vanda. Á styrktartónleikum, sem haldnir voru á eins árs afmæli drengsins unga, þar sem fjölmargir listamenn komu fram og gáfu vinnu sína, troðfylltu Bolvíkingar og nágrannar Félagsheimilið í Bolungarvík. Framtak þeirra sem fyrir tónleikunum stóðu er afar þakkarvert, enginn fór ósnortinn af þessari samkomu, kærleikurinn var auðfundinn. Góðar fjárhæðir söfnuðust, sem gjörbreyta aðstæðum fjölskyldunnar ungu til að takast á við erfiðleikana. Eins og sóknarpresturinn í Bolungarvík orðaði það, þá sýndu íbúar svæðisins sannarlega samfélagslega og kristilega ábyrgð sína, „að bera hver annars byrðar“.

Minnast þeirra sem horfnir eru

Um árabil hafa Bolvíkingar átt þess kost líkt og íbúar margra byggðarlaga að heiðra minningu þeirra ástvina sem á undan eru farnir, með því setja ljósakrossa á leiði. Það hefur verið til siðs að setja út rafmagnstengikassa fyrir fyrsta sunnudag í aðventu. Hjá mörgum íbúum hefst því jólaundirbúningurinn á því að minnast þeirra sem horfnir eru á braut, með því að lýsa upp kirkjugarðinn. Ljósakrossunum fjölgar fljótt í garðinum og áður en hátíð ljóssins gengur í garð er kirkjugarðurinn alskrýddur fallegum ljósum.

Á annan sunnudag í aðventu, sem er vígsludagur Hólskirkju, eru jafnan haldin aðventukvöld í kirkjunni. Nú í ár var aðventukvöld haldið í 51. skipti. Það var fyrrverandi organisti við kirkjuna, sem tók upp þennan sið, og síðan hefur hann verið í heiðri hafður. Við trúum því að þótt um árabil hafi aðventusamkomur verið haldnar í flestum kirkjum landsins, þá hafi þessi siður jafnvel hvergi verið viðhafður eins lengi og í Hólskirkju. Engin breyting varð þetta árið og var aðventukvöldið haldið 4. desember. Organistinn okkar og kirkjukór Bolungarvíkur sáu um tónlistarflutninginn eins og jafnan áður, en einnig kom fram barnakór. Í lok stundarinnar var einsöngur, jólalagið hátíðlega, Ó helga nótt, var sungið ásamt kórnum. Fermingarbörn komandi vors hafa ávallt sitt hlutverk á aðventukvöldunum og ræðumaður kvöldsins var skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur. Sóknarpresturinn flutti ávarp og stjórnaði aðventustundinni. Bolvíkingar fjölmenntu og fylltu kirkju sína á Hólnum.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×