Enski boltinn

John Terry boðinn nýr samningur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
John Terry.
John Terry. Vísir/Getty
Svo gæti farið að John Terry verði áfram í herbúðum Chelsea í eitt ár til viðbótar, þrátt fyrir allt.

Fram kom á blaðamannafundi í dag að Terry hafi verið boðið nýr samningur sem gildir í eitt ár.

Terry sagði í lok janúar að hann yrði ekki áfram hjá Chelsea en hefur síðan þá komið fram og sagt að helst myndi hann sjálfur kjósa að vera áfram.

Hann hefur verið allan sinn átján ára atvinnumannaferil hjá Chelsea en á þeim tíma hefur hann spilað 703 leiki. Terry spilaði fyrst fyrir Chelsea í október 1998.


Tengdar fréttir

Fer John Terry til Manchester United?

Það lítur út fyrir að John Terry, fyrirliði Chelsea, hafi spilað síðasta leikinn sinn fyrir félagið en samningur þessa 35 ára miðvarðar rennur út í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×