70 prósent líkur á því að Leicester vinni Englandsmeistaratitilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2016 09:30 Shinji Okazak fagnar sigurmarki sínu í gær. Vísir/EPA
Leicester City steig stórt skref í átt að enska meistaratitlinum þegar liðið vann Newcastle í gær og náði fimm stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Leicester hefur nú sjö stigum meira en Tottenham og ellefu stigum meira en Arsenal sem á reyndar leik inni á toppliðið. Bandaríkjamenn eru duglegir að velta uppi líkum á sigri byggðum á tölfræðilegum útreikningi og ESPN skellti fram sínum útreikningi eftir sigur Leicester í gær. Samkvæmt nýjustu tölum eru nú 70 prósent líkur á því að Leicester City verði Englandsmeistari 2016. Tottenham var aðeins tveimur stigum á eftir Leicester fyrir leik gærkvöldsins og Spurs-menn vonuðust eftir hjálp frá Newcastle en af því varð ekki. Tottenham er því aftur fimm stigum á eftir Leicester og nú eru 22 prósent líkur á því að Tottenham vinni sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 55 ár. Aðeins fjögur lið komast á blað hjá ESPN-mönnum og það eru heldur ekki miklar líkur á því að Arsenal eða Manchester City nái Leicester-mönnum. Arsenal hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu þremur leikjum og Manchester City hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum. Leicester hefur fengið sex stigum meira en Arsenal í þessum þremur umferðum og sex stigum meira en City í þessum fimm umferðum. Tölfræðingar ESPN meta það sem svo að það séu aðeins fjögur prósent líkur á því að Arsenal eða City verði enskur meistari. Önnur lið eiga skiljanlega ekki möguleika enda ekki það mörg stig eftir í pottinum.Leicester City is now a 70% title favorite (!), according to Soccer Power Index. pic.twitter.com/WekOzsD1x4— Paul Carr (@PCarrESPN) March 14, 2016
Enski boltinn Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira