Sagði Mourinho við Rooney að hann mætti fara? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2016 08:00 Wayne Rooney. Vísir/Getty
Framtíð Wayne Rooney hjá Manchester United er í óvissu og enska blaðið Sun slær því upp í morgun að leikmaðurinn hafi fengið leyfi til að fara frá Manchester United. Jose Mourinho hefur verið með Wayne Rooney á varamannabekknum að undanförnu en Rooney fékk ekki einu sinni að fara til London um helgina þar sem að Manchester United mætti Chelsea. „Roo can go“ er fyrirsögnin hjá Sun. Eftir 12 ár, 532 leiki og 246 mörk séu það skilaboð portúgalski knattspyrnustjórans til Rooney. Samkvæmt frétt Sun hefur Jose Mourinho gert Rooney grein fyrir því að hann þurfi að yfirgefa Old Trafford ætli hann sér að fá að spila reglulega í úrvalsdeildinni. Það sem gerir þetta mál enn dramatískara er að að Wayne Rooney vantar nú aðeins þrjú mörk til að slá met Sir Bobby Charlton og verða markahæsti leikmaður Manchester United frá upphafi. Sir Bobby Charlton skoraði mörkin sín 249 í 758 leikjum. Wayne Rooney var í byrjunarliðinu í fyrstu fimm umferðunum en hafði síðan komið inn á sem varamaður í undanförnum þremur deildarleikjum. Rooney var í byrjunarliðinu og með fyrirliðabandið í 4-1 sigri á Fenerbahce í Evrópudeildinni og lagði þá upp eitt mark. Það er eini sigur United-liðsins í októbermánuði. Wayne Rooney hefur aðeins skorað eitt mark á tímabilinu og það kom strax í fyrstu umferðinni á móti Bournemouth. Stuðningsmenn Manchester United hafa örugglega blendnar tilfinningar til Rooney. Hann er einn besti leikmaðurinn í sögu félagsins en þrátt fyrir að vera bara 31 árs gamall þá er eins og það sé orðið lítið eftir á tanknum.
Enski boltinn Mest lesið Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Fótbolti Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra Körfubolti Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Enski boltinn Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti Dunne telur að Heimir gæti misst starfið strax Fótbolti Fleiri fréttir Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ Sjá meira