Innlent

Bjóða 140 þúsund einstaklingum á Íslandi skimun fyrir mergæxli

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vísindamennirnir sem standa að rannsókninni.
Vísindamennirnir sem standa að rannsókninni. mynd/háskóli íslands
Hópur vísindamanna undir forystu Sigurðar Yngva Kristinssonar, prófessors í blóðsjúkdómum við Læknadeild Háskóla Íslands og sérfræðings við Landspítala, hefur hlotið 300 milljóna króna styrk, eða 2,4 milljónir bandaríkjadala, til rannsóknar á forstigi mergæxla og framvindu sjúkdómsins í mannslíkamanum. Liður í rannsókninni er að bjóða 140 þúsund einstaklingum búsettum á Íslandi í skimun.

Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að mergæxli sé ólæknandi sjúkdómur í beinmerg en einkenna sjúkdómsins verður oft ekki vart fyrr en hann hefur haft alvarleg áhrif á heilsuna. Árlega greinast um 25 manns með sjúkdóminn hér á landi og alls 200 þúsund manns í heiminum öllum. Samfara auknum rannsóknum á sjúkdómnum og nýjum og betri lyfjum hafa horfur sjúklinga með mergæxli hins vegar batnað mjög síðustu ár.

Rannsóknarverkefnið sem um ræðir hefur fengið nafnið iStopMM (Iceland Screens Treats or Prevents Multiple Myeloma). Leitað verður samþykkis einstaklinga fyrir þátttöku í verkefninu.

 

Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor og forsprakki rannsóknarinnar, segir að rannsóknahópurinn stefni að því að bjóða um 140 þúsund einstaklingum, búsettum á Íslandi, yfir fertugu að taka þátt og skima fyrir forstigi mergæxlis, svokallaðri einstofna góðkynja mótefnahækkun (MGUS). Finnist þetta forstig sjúkdómsins verði viðkomandi einstaklingum boðið að taka þátt í klínískri rannsókn þar sem markmiðið er að skoða hvaða meðferð henti best. Jafnframt er ætlunin að nýta gögnin úr rannsókninni til þess að þróa nýtt áhættulíkan fyrir framþróun sjúkdómsins.

„Í framhaldinu stefnum við að því að geta boðið sjúklingum með mergæxli meðferð mun fyrr en annars gerist og er það von okkar að þannig getum við stuðlað að lækningu sjúkdómsins,“ segir Sigurður Yngvi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×