Lífið

Vaknaði sem kærasta, varð unnusta í hádeginu og eiginkona um kvöldið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlega fallegur dagur.
Ótrúlega fallegur dagur.
Alfred Duncan kom kærustunni sinni heldur betur á óvart á dögunum þegar hann hafði skipulagt ótrúlegan viðburðaríkan dag fyrir Sherrell Woodward.

Duncan hafði skipulagt daginn í margar vikur og byrjaði þetta allt saman á venjulegum veitingarstað í Bandaríkjunum.

Þar hafði hann smalað saman allri fjölskyldunni í bakherbergi og fékk dóttur þeirra til að koma mömmunni inn í herbergið. Þar bað Duncan Woodward um að giftast sér. Því næst sendi hann hana út í bæ að hitta vinkonur sínar sem klæddu hana upp og lugu að henni að Woodward væri að fara sitja fyrir í myndatöku.

Vinkonurnar bundu fyrir augun á henni og fóru með hana af stað. Næsti viðkomustaður var brúðkaupið sjálft og báru tilfinningarnar hana gjörsamlega ofurliði þegar hún mætti í sitt eigið brúðkaup.

Dagurinn var myndaður í bak og fyrir og var það framleiðslufyrirtækið Holla Definition sem framleiddi það. Nú er komin stutt útgáfa af þessum örlagaríka degi á YouTube og má búast við enn lengri á næstu misserum.

Hér að neðan má horfa á myndbandið en um er að ræða algjört þriggja vasaklúta myndband.

Yall just see the wedding. The story is much deeper. #foreverduncan by @keongreen

A photo posted by Alfred Duncan (@alfredthemc) on

Right before I pop the question. She has no idea the kinda of day she is about to endure #foreverduncan

A video posted by Alfred Duncan (@alfredthemc) on

She said YES. #foreverduncan. Stay tuned

A video posted by Alfred Duncan (@alfredthemc) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×