Enski boltinn

Burnley skellti Liverpool

Liverpool var heldur betur skellt á jörðina eftir sigurinn gegn Arsenal því liðið lá gegn nýliðum Burnley á Turf Moor í dag.

Burnley komst yfir strax á annari mínútu leiksins því Sam Vokes kom Burnley yfir eftir klaufagang í vörn Liverpool.

Andre Gray tvöfaldaði svo forystuna fyrir Burnley á 37. mínútu og staðan var 2-0 í hálfleik.

Liverpool reyndi og reyndi að jafna metin, en þeir voru til að mynda 81% með boltann. Þeir áttu 26 marktilraunir gegn þremur Burnley-manna, en inn vildi boltinn ekki.

Bæði lið eru því með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina í ensku úrvalsdeildinni þetta árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×