Læknir ekki látinn svara fyrir fölsun Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 20. ágúst 2016 08:00 Hlédís Sveinsdóttir
Yfirlæknir kvennadeildar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands hefur ekki verið látinn svara fyrir meintar rangfærslur á atvikaskráningarblaði sem sent var landlæknisembættinu eftir mistök sem áttu sér stað í og eftir fæðingu árið 2011. Konan, Hlédís Sveinsdóttir, skrifar grein í blað dagsins um málið. Þar kemur fram hún hafi sent málið í þrígang til Ríkissaksóknara á síðustu tveimur árum. Tvisvar hefur verið farið fram á að lögreglan á Vesturlandi rannsaki það, án þess að læknirinn sé spurður út í aðalatriði málsins. Í atvikaskráningu er skrifað að súrefnisskortur sem barnið varð fyrir hafi stafað af því að naflastrengur hafi verið strekktur og vafinn um háls barns. Myndbandsupptökur af fæðingunni hafa aftur á móti afsannað það. Einnig eru viðbætur á barnablaði sem skrifaðar eru með öðrum penna en upphaflega skýrslan. „Allt til að fegra málsatvik,“ segir Hlédís. Hlédís segir engan taka ábyrgð. „Öllum virðist vera ljóst hvers kyns var, en á meðan enginn játar gulnar þetta mál í möppum og er vísað frá,“ segir Hlédís. „Ég skora á stjórnendur heilbrigðisstofnunarinnar að taka ábyrgð á þeim mistökum sem gerð voru innan veggja sjúkrahússins þannig að hægt sé að læra af þeim.“
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Fleiri fréttir FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn Skaut þremur skotum að dróna Fiskistofu Sauð upp úr í morgunumferðinni Spákaupmenn ásælist vatn meðan fæðuöryggi sé stefnt í voða Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Jarðakaup fjárfesta ógn við matvælaöryggi og nýtt húsnæði Stuðla Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld „Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“ Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Svarar Kára fullum hálsi Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Sjá meira