Sífellt fleiri sem þurfa aðstoð við að komast út af heimilum sínum vegna offitu Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 19. september 2016 10:09 Slökkviliðsmenn í Wales koma einstaklingi úr húsi sínu. Mynd/The South Wales Fire Service
Breskir slökkviliðsmenn aðstoðuðu á síðasta ári rúmlega níu hundruð manns sem ekki komust út af heimilum sínum sökum offitu. Slíkum verkefnum hefur fjölgað um ríflega þriðjung í landinu á undanförnum þremur árum. Heilbrigðisyfirvöld hafa lýst áhyggjum af vandamálinu.Breska ríkisútvarpið greinir frá því að slökkviliðsmenn hafi þurft að fjarlægja rúður, handrið og jafnvel veggi til þess að koma fólkinu út og undir læknishendur. Slökkvilið hóf að skrá slíkar tilkynningar niður árið 2012 þegar þær voru 709 talsins. Verkefnin eru orðin það mörg að festa hefur þurft kaup á sérstökum tækjabúnaði til þess að geta sinnt þeim með fullnægjandi hætti.Fangar í eigin líkama Dr. David Kerrigan, skurðlæknir sem sérhæfir sig í offitu, segir að oft sé um félagsfælið fólk að ræða sem forðist eftir fremsta megni að fara út á meðal fólks. Það nýti sér internetið til þess að versla helstu nauðsynjavörur frekar heldur en að gera það sjálft. „Fólk verður að föngum. Ekki einungis í eigin líkama heldur einnig á heimilum sínum. Því þyngra sem það verður því ólíklegra er að það fari út. Það notar til dæmis internetið mikið þannig að það þarf ekki einu sinni að fara út að versla og flest þeirra samskipti fara fram í gegnum samfélagsmiðla. Þannig festist það í þessum aðstæðum,“ segir Kerrigan. Hann segir jafnframt að offitutilfellum hafi ekki fjölgað svo um munar, en að hins vegar séu þau orðin verri en áður.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Fleiri fréttir Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Sjá meira