Erlent

Skandallinn sem ekki fer

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Luiz Inacio Lula da Silva og Dilma Rousseff á blaðamannafundi í maí þegar hún var enn forsætisráðherra.
Luiz Inacio Lula da Silva og Dilma Rousseff á blaðamannafundi í maí þegar hún var enn forsætisráðherra. vísir/EPA
Málaferlum sem tengjast Petrobras-hneykslinu í Brasilíu er engan veginn lokið þótt Dilma Rousseff hafi verið rekin úr forsetaembættinu í sumar. Í síðustu viku var forveri hennar, Luiz Inacio Lula da Silva, ákærður fyrir spillingu í tengslum við hneykslið.

Hann er sagður hafa tekið þátt í spillingunni, meðal annars með því að telja ekki fram til skatts glæsiíbúð mikla í Guaraja, sem hann segist þó aldrei hafa átt.

Deltan Dalagnol ríkissaksóknari segir að Lula hafi meira að segja verið höfuðpaurinn í Petrobras-málinu: „Lula var á toppi valdapíramídans,“ sagði saksóknarinn á blaðamannafundi. „Án ákvörðunarvalds hans hefði þessi svikamylla aldrei getað verið til.“

Þau Lula og Dilma voru vinsælustu stjórnmálamenn Brasilíu lengi vel, að minnsta kosti Lula. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur almenningur þó misst álit á öllum stjórnmálamönnum.

Lula var stofnandi Verkamannaflokksins og vann stórsigur í kosningum árið 2003. Dilma var náinn samstarfsmaður hans og tók við af honum árið 2011. Þau segja pólitíska andstæðinga sína standa á bak við dómsmálin. „Ef þau sanna að ég hafi verið spilltur, þá skal ég sjálfur gefa mig fram og gerast fangi,“ sagði Lula við blaðamenn.

Petrobras-svikamyllan snerist um að stjórnmálamenn veittu verktakafyrirtækinu Petrobras samninga gegn mútum. Í ljós hefur komið að þessi iðja var afar útbreidd.

Málið hefur að mörgu leyti lamað allt samfélagið, jafnt stjórnmálin sem efnahagslífið. Fréttaskýrendur hafa meira að segja sagt, sumir hverjir, að múturnar hafi verið nauðsynlegar til að halda samfélaginu gangandi.

Hagfræðingar eru að vonast til að efnahagurinn byrji að rétta úr kútnum á næsta ári eftir erfiða kreppu. Óvíst er hins vegar hvort dómsmálin tengd Petrobras muni til lengdar draga nokkuð úr spillingunni.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Rouseff vikið úr embætti forseta

Brasilískir öldungadeildarþingmenn kusu gegn forsetanum sem hefur verið sökuð um hylma yfir vaxandi tekjuhalla ríkisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×