Íslenski boltinn

Jóhann Helgi skaut Þór upp að hlið KA

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jóhann Helgi í leik með Þór.
Jóhann Helgi í leik með Þór. vísir/daníel
Þór er með jafn mörg stig og KA eftir 1-0 sigur á Leikni Fáskrúðsfirði á heimavelli í Inkasso-deild karla í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik, en Jesus Guerrero Saurez fékk tvö gul spjöld undir lok fyrri hálfleiks og því Fáskrúðsfirðingar einum færri.

Jóhann Helgi Hannesson skoraði sigurmarkið á 63. mínútu og því eru Þórsarar með nítján stig eins og nágrannar þerra í KA, á toppi Inkasso-deildarinnar.

Leiknir er í ellefta sætinu með sex stig, stigi frá Fjarðabyggð sem er í sætinu fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×