Rétt ákvörðun að brjótast í gegnum vegginn Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. febrúar 2016 06:00 Martin Hermannsson hefur spilað frábærlega á tímabilinu og hann gæti fært sig til Evrópu í sumar ef spennandi tilboð berst. vísir/Stefán „
Það er alltaf gaman að fá verðlaun og finna fyrir því að tekið er eftir manni en sigrarnir hjá liðinu eru miklu mikilvægari ef við ætlum okkur að gera eitthvað á þessari leiktíð,“ segir Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, í viðtali við Fréttablaðið, en hann var kjörinn leikmaður vikunnar í þriðja sinn á tímabilinu í norðausturdeild bandaríska háskólaboltans á dögunum. Martin, sem spilar með LIU Brooklyn, átti frábæra tvo leiki í síðustu viku þar sem hann skoraði að meðaltali 18 stig, tók níu fráköst, gaf fimm stoðsendingar og stal þremur boltum í tveimur sigurleikjum LIU. Sigrarnir voru líka mikilvægir fyrir liðið því það er nú öruggt inn í úrslitakeppni deildarinnar í baráttu um eina lausa sætið í lokamótinu, March Madness. „Við erum klárlega með nógu gott lið til að vinna þessa deild. Nú erum við búnir að sópa toppliðinu sem var spáð titlinum. Í síðustu tveimur leikjum erum við að átta okkur á hversu gott lið við erum með. St. Francis sem við unnum síðast er besta varnarliðið í deildinni en við skoruðum 82 stig á það. Sóknin er ekki vandamálið hjá okkur heldur vörnin,“ segir Martin. Draumur hans, eins og allra háskólastráka, er að spila í lokamótinu. „Það yrði þvílík upplifun. Liðið sem vann okkar deild í fyrra mætti Duke. Það væri ekki leiðinlegt að mæta þannig risaskóla því í lokamótinu uppgötvast alltaf nýjar stjörnur.“Lenti á vegg Martin stóð sig vel í fyrra og skoraði þá tíu stig, tók 3,8 fráköst og gaf 3,3 stoðsendingar að meðaltali í leik. Nú er hann að skora 16 stig að meðaltali í leik, taka 4,3 fráköst og gefa 4,4 stoðsendingar. Hann er einn af bestu leikmönnum norðausturdeildarinnar, en hver er stóri munurinn á þessum árangri milli tímabila? „Ég lenti á vegg í fyrra. Ég kom hingað úr íslensku deildinni þar sem maður var svakalegur karl en hérna snýst þetta svo mikið um varnarleikinn. Öll liðin eru líka búin að skoða þig inn og út og vita hvað þú ætlar að gera í hverri sókn,“ segir Martin, sem kvaddi Ísland sem Íslandsmeistari með KR og besti leikmaður Íslandsmótsins. „Ég átti í erfiðleikum því hinir leikmennirnir voru sterkari og fljótari. Ég ákvað því í sumar að gefa mig allan í landsliðsundirbúninginn og var mikið að vinna með Gunnari Einarssyni [einkaþjálfara og fyrrverandi leikmanni Keflavíkur]. Ég fann mikinn mun á mér líkamlega. Svo var líka egóbúst að vera valinn í landsliðið og fá mínútur á EM.“ Íþróttir snúast líka að stórum hluta um andlega þáttinn og bakvörðurinn úr Vesturbænum er vel meðvitaður um það. „Maður þarf bara að vinna með hausinn á sér og átta sig á því hvað maður getur. Maður þarf bara að fara í alla þessa leiki fullur sjálfstrausts og hafa trú á að maður sé betri en þessir gaurar,“ segir Martin.Martin fór með íslenska landsliðinu á Evrópumótið og spilaði þar við suma bestu körfuboltamenn heims.Vísir/EPAÍhugaði að skipta Hávær orðrómur var uppi í sumar þess efnis að Martin ætlaði ekki að mæta aftur til LIU heldur mögulega finna sér lið í Evrópu eða jafnvel skipta um skóla í Bandaríkjunum. Martin hélt spilunum þétt að sér í sumar þegar gengið var á hann sem var skynsamlegt þar sem hann ákvað að fara aftur til LIU og spila í stóra eplinu. „Það kom alveg upp í kollinn hjá mér að breyta til. Það eru hlutir hérna sem fara í taugarnar á mér og ég er ekki alltaf nógu sáttur. Kaninn er bara öðruvísi en Evrópubúinn. Það kom já alveg til greina að fara eitthvað annað,“ segir Martin sem tók að því er virðist, miðað við gengið í vetur, hárrétta ákvörðun. „Þegar ég hugsaði mig betur um ákvað ég að taka eitt ár í viðbót því maður hefur heyrt að fyrsta árið sé mjög erfitt hérna. Það tekur tíma að koma sér inn í hlutina. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun að vera áfram,“ segir Martin. Það þarf aftur á móti ekki að fara svo að KR-ingurinn mæti til leiks næsta vetur ef áhuginn verður mikill frá Evrópu í sumar. Hann viðurkennir að það komi vel til greina að skoða spennandi tilboð handan hafsins. „Alveg klárlega. Maður finnur fyrir miklum áhuga úr öllum áttum. Fólk er að hafa samband sem er eðlilegt þegar vel gengur. Ég reyni bara að einbeita mér að liðinu núna og sé svo til hvað gerist eftir tímabilið,“ segir Martin.Martin saknar Elvars Más en fær þó mikið af gestum.vísir/daníelKærastan mikið úti Martin var nýkominn úr síðbúnum morgunmat og að gera sig kláran fyrir æfingu þegar Fréttablaðið heyrði í honum, en hann var að undirbúa sig fyrir leik gegn Robert Morris-háskólanum í Pittsburgh í gær. Það var létt yfir Martin sem er eini Íslendingurinn í liðinu núna eftir að Elvar Már Friðriksson lét gott heita í Brooklyn og skipti yfir til Miami. „Það hjálpaði mikið að vera með Elvari í fyrra. Ég var samt ekkert smeykur við að koma út aftur því ég var búinn að koma mér inn í allt saman hérna,“ segir Martin aðspurður hvernig það sé að vera eini Íslendingurinn. „Ég er samt aldrei alveg einn. Kærastan er mikið hjá mér, fjölskyldan kemur í næstu viku og svo er stöðugur ferðamannastraumur hingað út. Það er auðvelt að koma því þetta eru ekki 2-3 flug,“ segir Martin. Það var ekki hægt að kveðja án þess að spyrja hvernig Martin fyndist faðir hans, Hermann Hauksson, taka sig út í sérfræðingahlutverkinu í Domino’s-körfuboltakvöldi. „Hann er gríðarlega flottur og góður að koma fram. Pabbi veit alveg hvað hann syngur og maður er bara hrikalega stoltur af honum,“ segir Martin sem horfir mikið á íslenskar íþróttir úti. „Ég náði að redda þessu þannig að ég get horft á Stöð 2 Sport. Það getur alveg bjargað fyrir mann deginum að sjá beinu útsendingarnar úr körfunni og svo þáttinn sem er alveg geggjaður. Ég er svo tryggur íslensku sjónvarpi að ég horfði meira að segja á Super Bowl-leikinn á Stöð 2 Sport hér úti í Bandaríkjunum,“ segir Martin Hermannsson.
Körfubolti Tengdar fréttir Martin magnaður í sigri í Íslendingaslag Martin Hermannsson var besti maður LIU Brooklyn sem vann Gunnar Ólafsson og félaga í St. Francis í háskólaboltanum. 15. febrúar 2016 22:01 Martin leikmaður vikunnar í þriðja sinn Landsliðsmaðurinn fór á kostum í tveimur sigurleikjum LIU Brooklyn í bandaríska háskólakörfuboltanum. 16. febrúar 2016 17:45 Martin sá fyrsti í þrjú ár til að skora yfir 20 stig þrisvar í röð Íslenski landsliðsmaðurinn er að fara á kostum með LIU Brooklyn í bandarísku háskólakörfunni. 5. febrúar 2016 19:15 Martin með enn einn stórleikinn | Sigur hjá Degi Kár og Gunnari Martin Hermannsson heldur áfram að gera það gott með LIU Brooklyn í bandaríska háskólaboltanum. 6. febrúar 2016 23:15 Martin valinn leikmaður vikunnar í NEC-deildinni Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti frábæra viku með körfuboltaliði LIU Brooklyn skólans og hann var í kvöld valinn leikmaður vikunnar í NEC-deildinni. 1. febrúar 2016 18:00 Svakaleg tölfræði hjá Martin í síðustu sex leikjum Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson er heldur betur að vekja athygli á sér vestan hafs með frábærri frammistöðu sinni þessa dagana með skólaliði LIU Brooklyn. 16. febrúar 2016 10:15 Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport Leik lokið: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn HM í bakgarðshlaupum: Mari hleypur með rifinn liðþófa | „Veit ekki hvað bíður mín“ Sport Íslensku stelpurnar Evrópumeistarar í fjórða sinn Sport Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Enski boltinn Í beinni: FH - Valur | Valsmenn þurfa sigur í Evrópubaráttunni Íslenski boltinn Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Fótbolti Íslenskur ökumaður fagnaði sigri í Le Mans keppninni Sport Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir „Getur skorað en þetta er enginn Remy Martin“ Ármenningar enn ósigraðir og einir á toppnum Körfuboltakvöld um Kane: „Finnst hann ekki hafa gert neitt hrikalegt“ Hreinn úrslitaleikur um titilinn „Stóðum upp sterkari og svöruðum með sigri“ Lárus: Það er best að hitta þá ekki eftir svona leik Styrmir reif til sín flest fráköst Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 88-89 | Háspenna í grannaslagnum Uppgjör og viðtöl: Þór Þ. - KR 92-97 | Þrususlag í Þorlákshöfn lauk með sigri KR Hörður Axel búinn að ná Loga í þristum Fyrirliði Hauka sleit krossband Fékk öskurskilaboð frá Steph Curry Lætin í Kópavogi til skoðunar hjá KKÍ Sjáðu höggið og lætin í Kópavogi Dagskráin í dag: Stórleikur og öll lætin gerð upp í Körfuboltakvöldi „Hann var eitthvað að tala og svo lét hann höggin tala“ „Hann kýldi mig“ Uppgjörið: Álftanes - Valur 100-103 | Álftanes kastaði frá sér fyrsta sigri til Vals „Það er löngu kominn tími á að það sé tekið á þessum gæja“ Myndir: Allt brjálað í Smáranum eftir höggið frá Kane Töfrar Martins vöktu athygli Uppgjörið: Grindavík - Höttur 113-84 | Grindavík enn með fullt hús stiga eftir stórsigur Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - ÍR 117-88 | Miskunnarlausir Stjörnumenn Uppgjörið: Tindastóll - Haukar 106-78 | Haukar áfram fallbyssufóður Helena segir að Þóra sé að uppskera: Þarf þessa ábyrgð Pavel: Þetta er verkefni fyrir Ægi sjálfan Pavel um bestu liðin í deildinni: Ég sé tækifæri fyrir KR New York einum leik frá því að eignast aftur meistara „Alltaf í einhverjum skotgröfum“ Gaz-leikur Pavels: „Þeir geta hætt að vera litli Höttur frá Egilsstöðum“ Sjá meira
Martin magnaður í sigri í Íslendingaslag Martin Hermannsson var besti maður LIU Brooklyn sem vann Gunnar Ólafsson og félaga í St. Francis í háskólaboltanum. 15. febrúar 2016 22:01
Martin leikmaður vikunnar í þriðja sinn Landsliðsmaðurinn fór á kostum í tveimur sigurleikjum LIU Brooklyn í bandaríska háskólakörfuboltanum. 16. febrúar 2016 17:45
Martin sá fyrsti í þrjú ár til að skora yfir 20 stig þrisvar í röð Íslenski landsliðsmaðurinn er að fara á kostum með LIU Brooklyn í bandarísku háskólakörfunni. 5. febrúar 2016 19:15
Martin með enn einn stórleikinn | Sigur hjá Degi Kár og Gunnari Martin Hermannsson heldur áfram að gera það gott með LIU Brooklyn í bandaríska háskólaboltanum. 6. febrúar 2016 23:15
Martin valinn leikmaður vikunnar í NEC-deildinni Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti frábæra viku með körfuboltaliði LIU Brooklyn skólans og hann var í kvöld valinn leikmaður vikunnar í NEC-deildinni. 1. febrúar 2016 18:00
Svakaleg tölfræði hjá Martin í síðustu sex leikjum Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson er heldur betur að vekja athygli á sér vestan hafs með frábærri frammistöðu sinni þessa dagana með skólaliði LIU Brooklyn. 16. febrúar 2016 10:15
Leik lokið: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Leik lokið: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn