Omran er einn þúsunda Samúel Karl Ólason skrifar 19. ágúst 2016 18:00 Hinn fjögurra ári gamli Omran særðist í loftárás í Aleppo. Vísir/AFP
Myndin af hinum fjögurra ára gamla Omran þar sem honum hafði verið bjargað úr rústum byggingar eftir loftárás í Aleppo á dögunum fangaði forsíður um allan heim. Hann var kallaður „raunverulegt andlit“ átakanna í Sýrlandi, en barnalæknir segist hlúa að tugum barna á hverjum degi og sár þeirra séu iðulega verri en sár Omran. Þúsundir barna hafa búið við daglega ógn af umsátrum og sprengingum. Frá því að átökin hófust í landinu árið 2012 hafa minnst 250 þúsund manns látið lífið og þar af minnst 15 þúsund börn. „Það eru til þúsundir saga um særð börn sem hafa misst limi og særst á maga og höfði,“ segir barnalæknirinn Abu Baraa í samtali við AFP. Sem dæmi nefndi hann að loftárás hafi verið gerð á yfirráðasvæði uppreisnarmanna í austurhluta Aleppo í gær. Sjö létu lífið og fjölmargir særðust. „Eitt barn særðist á höfði og skrokki. Við reyndum að stöðva blæðinguna og gáfum honum blóð, en hann var of særður og dó. Hann var nærri því sex ára gamall. Þetta eru aðstæður sem við eigum við á hverjum degi.“Baraa segir að þrátt fyrir að mynd Omran hafi vakið mikla athygli og reiði muni það ekki hafa nein áhrif á ástandið í Sýrlandi. „Heimurinn getur horft á myndbönd af börnum á hverjum degi á Youtube. Börnum sem deyja í loftárásum og sitja föst í rústunum. Athygli heimsins beinist hins vegar ekki hingað. Þetta eru tóm orð.“Ljósmynarinn grét Ljósmyndarinn sem tók myndirnar af Omran hefur segist búa í um 300 metra fjarlægð frá húsinu þar sem fjölskylda Omran bjó. Mahmoud Raslan segir bygginguna, sem var sex hæðir, hafa orðið rústir einar. Omran var sá fyrsti sem bjargað var úr rústunum en Raslan segist hafa farið að gráta á meðan hann hafi verið að taka myndirnar. „Þetta var ekki í fyrsta sinn sem ég grét. Ég hef grátið margsinnis þegar ég hef verið að taka myndir af særðum börnum. Ég græt alltaf. Við stríðsljósmyndarar grátum alltaf,“ segir Raslan á vef Telegraph.Five-year-old Omran from Syria on front pages of European papers today pic.twitter.com/LMvnuYJIg4— Louise Roug (@louiseroug) August 19, 2016 Omran wasn't alone pic.twitter.com/szNn2d7BcD— Yasmine (@yasminebal) August 19, 2016 His name is Omran. The heartbreaking image that brought @KateBolduan to tears https://t.co/Mlg2f13Pw1 https://t.co/MMAV3jNinu— CNN (@CNN) August 18, 2016 Stay or leave, #Syria 's children have seen the worst. Omran & Aylan, by cartoonist @khalidalbaih : pic.twitter.com/0yzRnyA19B— Joyce Karam (@Joyce_Karam) August 18, 2016 "Why is it always the innocents who suffer most, when you high lords play your game of thrones?"-GRRM #Omran pic.twitter.com/NkamSIPYfW— خلود♛ (@loodyvip) August 19, 2016
Tengdar fréttir Hjálpargögn komast ekki til umsáturssvæðanna í Aleppo Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna segja tilgangslaust að skipuleggja hjálparstarf í Sýrlandi. Aðilar átakanna verði að taka sig á og sýna svolitla mannúð. 19. ágúst 2016 07:00 Fimm ára drengur orðinn að andliti hörmunganna í Aleppo Hinn fimm ára Omran Daqneesh særðist í loftárás í hverfi undir stjórn uppreisnarhópa í sýrlensku borginni Aleppo. 18. ágúst 2016 09:02 Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Fleiri fréttir Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Sjá meira
Hjálpargögn komast ekki til umsáturssvæðanna í Aleppo Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna segja tilgangslaust að skipuleggja hjálparstarf í Sýrlandi. Aðilar átakanna verði að taka sig á og sýna svolitla mannúð. 19. ágúst 2016 07:00
Fimm ára drengur orðinn að andliti hörmunganna í Aleppo Hinn fimm ára Omran Daqneesh særðist í loftárás í hverfi undir stjórn uppreisnarhópa í sýrlensku borginni Aleppo. 18. ágúst 2016 09:02