Fótbolti

Aftur ruku mótsmiðarnir út

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Laugardalsvöllur verður þéttsetinn í undankeppni HM.
Laugardalsvöllur verður þéttsetinn í undankeppni HM. vísir/vilhelm
KSÍ setti 600 aukamótsmiða í sölu í hádeginu og þeir voru fljótir að rjúka út.

Um daginn fóru 1.000 mótsmiðar á 20 mínútum og það tók svipaðan tíma að selja þessa 600 í viðbót.

Röðin á miði.is var löng og eflaust fengu færri en vildu mótsmiða að þessu sinni.

Þeir sem ekki fengu mótsmiða verða að vera klárir í slaginn er baráttan um alla hina miðana hefst.

Fyrsti heimaleikur Íslands í undankeppni HM er 6. október gegn Finnlandi.



Röðin var strax orðinn löng klukkan 12.00.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×