Enski boltinn

Hart má fara frá Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hart fagnar því líklega að mega fara frá City.
Hart fagnar því líklega að mega fara frá City. vísir/getty
Pep Guardiola, stjóri Man. City, hefur gefið markverðinum Joe Hart leyfi til þess að yfirgefa félagið.

Guardiola virðist ekki hafa mikla trú á Hart og setti hann á bekkinn fyrir tímabilið.

„Ég vil ekki hafa leikmenn sem vilja ekki vera hérna. Öllum er samt alltaf frjálst að vera áfram og berjast fyrir sæti sínu,“ sagði Guardiola.

Félagaskiptaglugganum verður lokað eftir tvær vikur og því er spáð að Hart verði lánaður til annars félags.

Willy Caballero hefur staðið á milli stanganna í fyrstu leikjum tímabilsins en Guardiola er sagður ætla að fá Claudio Bravo frá Barcelona til þess að standa í markinu í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×