Enski boltinn

Zlatan og Pogba fóru á kostum | Sjáðu samantekt úr leik kvöldsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Manchester United fer vel af stað á nýju keppnistímabili undir stjórn Jose Mourinho. Liðið vann Souhampton, 2-0, á heimavelli og skoraði Zlatan Ibrahimovic bæði mörkin.

Paul Pogba, sem er nýkominn aftur til United frá Juventus og varð þar með dýrasti leikmaður sögunnar, var í stóru hlutverki með þeim rauðu í kvöld og átti góðan leik.

Samantekt úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en í lok hvers leikdags birtast öll helstu atvik leikjanna í myndböndum á sjónvarpsvef Vísis.

Alls eru sjö leikir á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar á morgun, þar af þrír í beinni á Stöð 2 Sport. Þeir leikir sem ekki eru í beinni útsendingu verða sýndir síðar á Stöð 2 Sport og hliðarrásum. Upplýsingar um sýningartíma má finna hér.

Umferðinni lýkur svo með tveimur leikjum á sunnudag og hún verður svo gerð upp í Messunni á mánudagskvöld klukkan 20.30.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×