Merson hissa: Er Wenger hrifinn af Wilshere sem leikmanni? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. september 2016 08:00 Wilshere hefur glímt við erfið meiðsli undanfarin ár. vísir/getty
Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal og sparkspekingur hjá Sky Sports, er undrandi á þeirri ákvörðun Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, að lána miðjumanninn Jack Wilshere til Bournemouth.Eins og fram kom á Vísi í gær var Roma nálægt því að klófesta Wilshere áður en Bournemouth kom inn í myndina. Enska úrvalsdeildarliðið bauðst til að borga tvær milljónir punda fyrir leiguna sem og þau 80.000 pund sem leikmaðurinn fær í laun á viku. Wilshere hefur verið mikið meiddur undanfarin ár og spilaði t.a.m. aðeins þrjá leiki á síðasta tímabili. En þrátt fyrir að vera ekki öruggur með sæti í byrjunarliði Arsenal á Merson erfitt með að skilja af hverju Wilshere var lánaður, og það í svona langan tíma.Merson varð tvívegis enskur meistari með Arsenal.vísir/getty„Ég var mjög hissa að sjá leikmann eins og Wilshere fara á láni út tímabilið, ég hefði skilið það ef þetta hefðu verið 1-2 mánuðir,“ sagði Merson sem lék með Arsenal á árunum 1985-97. „Hann er frábrugðinn þeim leikmönnum sem Arsenal er með. Hann býr til hluti og getur þrætt nálaraugað með sendingum sínum.“ Merson veltir fyrir sér hvort það búi eitthvað annað að baki, en að láta Wilshere fá fleiri mínútur. „Þetta snýst ekki um að hann þurfi að spila fótbolta, það eru margir aðrir leikmenn hjá Arsenal sem þurfa að spila,“ sagði Merson. „Alex Oxlade-Chamberlain hefur ekki sparkað í bolta, sem og Theo Walcott, en þeir eru ekki farnir á lán. Ég myndi spyrja Wenger hvort hann hafi yfirhöfuð mætur á Wilshere. „Er hann hrifinn af og treystir hann Wilshere sem leikmanni? Því það eru aðrir leikmenn hjá Arsenal sem hafa ekki staðið sig og ekki voru þeir lánaðir.“ Merson segir ennfremur að Wenger verði eflaust gagnrýndur fyrir þessa ákvörðun finni Wilshere sitt fyrra form hjá Bournemouth. Wilshere, sem hefur leikið 34 landsleiki fyrir England, leikur væntanlega sinn fyrsta leik fyrir Bournemouth þegar liðið tekur á móti West Brom um næstu helgi.
Enski boltinn Mest lesið Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“ Fótbolti Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik Fótbolti Stefnir í stríð á milli tveggja af stærstu handboltafélögum heims Handbolti Æfir hjá gamla félagi föður síns Fótbolti Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Kári sagði Kolbein steinsofandi: Það versta er að þeir vissu þetta Fótbolti Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Fótbolti Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Fótbolti Stefán Árni stríddi Tomma með paparassa myndbandi frá sumrinu Körfubolti Fleiri fréttir Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Sjá meira