Fótbolti

Blæddi úr auga Van Persie

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Van Persie er hér borinn af velli í gær.
Van Persie er hér borinn af velli í gær. vísir/getty
Hollendingurinn Robin van Persie hlaut hræðilega meiðsli á auga í leik Fenerbahce í tyrkneska boltanum í gær.

Van Persie skoraði fyrsta mark Fenerbahce í 3-1 sigri á Akhisar Belediyespor en fór svo meiddur af velli.

Hann lenti þá í samstuði við Abdulwahid Sissoko og lá eftir óvígur. Er Van Persie var borinn af velli mátti sjá að það blæddi úr auga hans. Það má sjá á myndbandinu hér að neðan.

Læknir Fenerbahce segir að þetta hafi litið út fyrir að vera alvarlegra en það sé. Hann muni halda fullri sjón á auganu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×