West Ham gæti þurft að spila fyrir luktum dyrum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2016 09:30 Stuðningsmaður Chelsea storkar hér stuðningsmönnum West Ham á leik liðanna í vikunni. Vísir/Getty
Vandræðin með stuðningsmenn West Ham hafa verið mikið til umræðu í Englandi eftir slæma hegðun hluta þeirra á mörgum heimaleikjum Lundúnaliðsins á þessu tímabili. West Ham flutti frá Upton Park yfir á Ólympíuleikvanginn í sumar og hvort að það hafi verið kveikjan eða ekki þá eru stuðningsmenn West Ham búnir að vera óvenju pirraðir á fyrstu mánuðum tímabilsins. Ólympíuleikvöllurinn er vissulega glæsilegur og góður kostur fyrir West Ham en öryggisgæslan hefur hinsvegar ekki verið í nægilega góðum málum. Hún var aukin fyrir síðasta leik en það dugði ekki. Nú kalla háttsettir menn á harðar aðgerðir eftir mikil ólæti á deildabikarleik West Ham og Chelsea í vikunni þar sem óeirðalögregla átti í fullu fangi með að skilja að ósátta stuðningsmenn í stúkunni. Sex voru á endanum handteknir og þrír þeirra hafa í framhaldinu verið ákærðir. „Þetta er ekki boðlegt. Ef við sjáum aftur þetta ofbeldi á áhorfendapöllunum í næstu tveimur eða þremur heimaleikjum West Ham þá er eina í stöðunni að West Ham spili fyrir luktum dyrum,“ sagði þingmaðurinn Mark Field við Evening Standard en hann er varastjórnarformaður í þingnefnd sem sér um fótboltatengd mál. Vandamálið er því komið alla leið inn á breska þingið og þar krefjast þingmenn þess að forráðamenn West Ham taki á þessu máli. Ef það tekst ekki eiga stuðningsmenn West Ham það á hættu að vera lokaðir úti. Forráðamenn West Ham hafa hótað því að setja alla ólátabelgi í lífstíðarbann og hefur lagt ofurkapp á að finna út hvaða tvö hundruð óeirðarseggir voru þarna að verki. Enska knattspyrnusambandið hefur einnig sett af stað rannsókn á vandamálinu.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Enski boltinn Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Enski boltinn Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Enski boltinn Gaz-leikur Pavels: „Það eru margir hákarlar að synda í kringum Val“ Körfubolti Skipta dómurum út fyrir gervigreind á sögufræga mótinu Sport Ældi á heimavöll Sædísar sem þurfti að bíða Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Sjá meira