Fótbolti

Missti hluta af eyranu í æfingaleik | Myndir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér sést hvernig stigið er ofan á eyrað á Menez. Sekúndubroti síðar fór hluti af eyranu af.
Hér sést hvernig stigið er ofan á eyrað á Menez. Sekúndubroti síðar fór hluti af eyranu af. vísir/afp
Undirbúningstímabilið byrjaði ekki vel hjá franska landsliðsmanninum Jeremy Menez.

Hann leikur með Bordeaux í heimalandinu og lenti skelfilegu óhappi í æfingaleik gegn FC Lorient.

Það var óvart stigið ofan á höfuð Menez í leiknum gegn Lorient, takki festist í eyranu og hreinlega reif hluta af eyra leikmannsins.

Menez fór í aðgerð vegna meiðslanna í gær þar sem reynt var að sauma eyrað aftur á hann.

Þetta var fyrsti leikur hans með Bordeaux en hann hafði komið til félagsins þrem dögum áður frá AC Milan.

Þetta er ekki smekklegt og klárlega afar sársaukafullt.vísir/afp
vísir/afp
vísir/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×