Enski boltinn

Stórsigur Arsenal svanasöngur Moyes? | Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arsenal kláraði Sunderland á síðustu tuttugu mínútunum í leik liðanna á Leikvangi ljóssins í dag, en Arsenal vann 4-1 sigur.

Alexis Sanchez kom Arsenal yfir á 19. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik, en Jermain Defoe jafnaði metin á 65. mínútu af vítapunkinum.

Oliver Giroud kom inná sem varamaður á 69. mínútu og sjö mínútum síðar var Frakkinn búinn að skora tvö mörk og koma Arsenal í 3-1.

Alexis Sanches skoraði svo annað mark sitt og fjórða mark Arsenal á 78. mínútu og lokatölur urðu 4-1 sigu Arsenal.

Arsenal er á toppnum með 23 stig eftir tíu leiki, en þeir hafa þriggja stiga forskot á Manchester City og Liverpool sem eiga þó leik til góða.

Sunderland er á botninum með tvö stig og það verður að teljast ólíklegt að David Moyes, stjóri Sunderland, haldi starfi sínu eftir þessa útreið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×