Enski boltinn

Liverpool eltir toppliðin eins og skugginn | Ellefu leikir í röð án ósigurs | Sjáðu mörkin

Liverpool jafnaði Manchester City og Arsenal að stigum með 4-2 sigri á Crystal Palace í fjörugum síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Emre Can kom Liverpool yfir á 16. mínútu en tveimur mínútum síðar gerði Dejan Lovren sig sekann um skelfileg mistök þegar hann nánast gaf James McArthur mark á silfurfati.

Lovren var þó fljótur að bæta upp fyrir mistökni því á 21. mínútu kom hann Liverpool aftur yfir með öflugum skalla, en fjöri fyrri hálfleiks var langt því frá að vera flókið.

Á 33. mínútu skoraði James McArthur annað mark sitt og jafnaði fyrir Palace með frábærum skalla, en Joel Matip kom Liverpool yfir fyrir hlé með fimmta marki fyrri hálfleiks.

Fjörið var minna í síðari hálfleik, en á 71. mínútu vippaði Roberto Firmino boltanum laglega yfir Steve Mandanda eftir sendingu Jordan Henderson og kom Liverpool í 4-2.

Lokatölur urðu svo 4-2 sigur Liverpool, en fyrri hálfleikurinn var ein mesta skemmtun þessa tímabils þar sem fimm mörk litu dagsins ljós.

Liverpol er því búið að vinna sjö af fyrstu tíu leikjum sínum, en liðið er með 23 stig, jafn mörg og Man. City og Arsenal. Liðin eru öll jöfn á toppnum, en City og Arsenal raða sér í fyrstu tvö sætin á markamun.

Liðið hefur ekki tapað í ellefu leikjum í röð í öllum keppnum og virðist á góðri vegferð undir stjórn Jurgen Klopp.

Palace er í tólfta sæti með ellefu stig eftir leikina tíu, en þeir hafa unnið þrjá leiki, gert tvö jafntefli og tapað fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×