Skoðun

Sjálfbær þróun – hvert er ferðalaginu heitið?

Sandra Rán Ásgrímsdóttir skrifar
Vitundarvakning hefur átt sér stað í samfélaginu varðandi þau áhrif sem nútímalifnaðarhættir hafa á umhverfið og mörg góð skref hafa verið stigin í rétta átt til að takmarka þau. Öll viljum við að sjálfsögðu ná settum markmiðum en við Íslendingar eigum það þó til að vera stórtæk í orðum en fylgja þeim takmarkað eftir með verkum. Oft getur nefnilega verið erfitt að líta í eigin barm og sjá hverju þarf að breyta, auðveldara að fela sig bak við gnægð af endurnýjanlegri orku og halda því fram að þar með sé takmarkinu náð. Það er þó ljóst að vistspor hins almenna Íslendings er með þeim stærri í heiminum og því töluvert sem má bæta.

Ábyrgð verkfræðinnar

Verkfræðin hefur í gegnum tíðina skapað mikið af þeim þægindum sem við vildum ekki vera án í dag. Hún hefur á sama hátt valdið mörgum af okkar stærstu umhverfis­vandamálum s.s. mengun lofts og lagar og ágangi á náttúruauðlindir. Lögð hefur verið áhersla á tæknilegar úrlausnir en hugsað minna út í möguleg áhrif þeirra á umhverfi okkar til framtíðar. Í dag er það orðið nokkuð ljóst að til þess að hægt sé að tryggja velferð til framtíðar þurfum við að þróast innan þolmarka náttúrunnar. Þó svo að áskorunin sé þverfagleg þá mun verkfræðin eiga stóran þátt í þessari þróun.

Vitundarvakning um ábyrgð verkfræðinga er víða komin lengra á veg en hérlendis. Víða erlendis er boðið upp á námsgráður sem byggja á sjálfbærri þróun og margar verkfræðideildir hafa innleitt áfanga byggða á þeirri hugmyndafræði inn í sitt grunnnám. Fjöldi verkfræðistofa hefur áttað sig á auknum kröfum um góða frammistöðu í umhverfismálum og ráðnir hafa verið sérstakir ráðgjafar á sviði sjálfbærrar þróunar. Hérlendis er þó enn töluvert í land þar sem skilningur á hugtakinu og viljinn til breytinga er ekki almennur.

Stefnum á að gera betur

Það er ekkert því til fyrirstöðu að við Íslendingar stöndum jafnfætis nágrönnum okkar, eða framar, þegar kemur að umhverfismálum og uppbyggingu sem byggist á sjálfbærni. Til þess að úr því verði þurfa þó verkfræðingar að aðlaga sig því að sjálfbær þróun sé höfð að leiðarljósi við tæknilegar úrlausnir. Stór þáttur í að ná fram breytingum er hugarfarsbreyting, bæði verkfræðinga og annarra, að hugsað sé út fyrir rammann í hverju verkefni og litið á heildarmyndina. Slík hugarfarsbreyting krefst þjálfunar og þverfaglegrar samvinnu en ekki síst vitundarvakningar. Verkfræðin mun gegna mikilvægu hlutverki í að skapa framtíð sem gerir okkur kleift að lifa við þau þægindi sem við lifum við í dag án þess að hafa neikvæð áhrif á umhverfið.

Árangur krefst samvinnu

Vitundarvakning um mikilvægi sjálfbærrar þróunar hefur átt sér stað í samfélaginu og margt gott verið gert en með nokkrum skrefum til viðbótar er mögulegt að ná enn meiri árangri. Jafnvel þótt hægt væri að skrifa langan lista um þær breytingar sem þurfa að eiga sér stað innan verkfræðinnar er ljóst að verkfræðingar munu ekki takast einir á við þetta verkefni. Til þess að árangur náist þarf að vera til staðar skýr stefnumótun á þessu sviði og eftirfylgni frá stjórnvöldum ásamt samstarfi við atvinnulífið og framkvæmdaaðila. Framfarir í umhverfismálum eru nefnilega samstarfsverkefni og sjálfbær þróun er ferðalag en ekki endastöð. Við þurfum stöðugt að bæta okkur og gera betur, takmarka neikvæð áhrif og stefna að því að verk okkar skili ábata fyrir umhverfi og samfélag en valdi ekki skaða.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Sjá meira


×