Skoðun

Foreldrar vaknið!

Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar
Nú berjast grunnskólakennarar, enn einu sinni, með kjafti og klóm fyrir framtíð íslensks menntakerfis. Staðan nú er alvarlegri en áður þegar kjarabarátta kennara er annars vegar.

Í dag er að duga eða drepast. Í dag þurfa sveitarfélögin að koma hreint fram og viðurkenna opinberlega að grunnskólakennarar og grunnskólanemendur hafi verið sviknir illilega af þeim sjálfum hvað alla þætti starfsumhverfis þeirra varðar. Sveitarfélögin, með aðstoð ríkis, hafa komið grunnskólum landsins, nemendum og grunnskólakennurum í þá stöðu sem nú er uppi á teningnum. Ég ætla ekki að tíunda ástæður þess af hverju grunnskólakennarar eru verðugir hærri launa. Ég ætla ekki að tíunda ástæður þess af hverju meðalaldur kennara í grunnskólum landsins sé um fimmtugt. Ég ætla ekki að tíunda það kerfisbundna niðurbrot sem átt hefur sér stað í grunnskólunum undanfarna áratugi undir því eina yfirskini: hagræðing.

Foreldrar geri kröfur

Ég biðla til foreldra. Foreldrar vaknið! Látið í ykkur heyra. Verið reið. Verið sýnileg. Verið málefnaleg. Krefjist þess að ekki sé brotið á rétti barna ykkar daglega. Krefjist þess að börnin ykkar mæti fagfólki og sérfræðingum daglega þau 10 ár sem þau eru í grunnskólanum, lungann úr degi hverjum. Krefjist þess að barnið ykkar fái tækifæri til að nema á eigin forsendum, á fjölbreyttan máta, í öruggu umhverfi stýrðu af sérfræðingum í málefnum þeirra. Gerið þá kröfu að sveigjanleiki eigi sér stað í kerfi sem annars er hugsað út frá Excel-skjölum og formfestu sem á við engin rök að styðjast þegar um lifandi verur er að ræða. Hvenær hafa börnin ykkar passað inn í Excel-skjal? Ég elska Excel. Ekki misskilja mig. Það er dásamlegt töfratæki. Ég myndi þó seint láta það ala upp börnin mín.

Ég hef séð hvað röng manneskja á vinnustaðnum grunnskóli getur gert mikinn skaða á stuttum tíma. Örstuttum. Einnar setningar stuttum tíma. Skaði sem ekki er svo auðveldlega lagaður. Við erum ekki að kljást við skjöl og pappíra og tölur. Við vinnum með framtíðina. Við vinnum með börn sem eru að þroskast og þurfa leiðsögn. Þau þurfa ramma, þau þurfa skilning, þau þurfa umhyggju. Þau þurfa fagmennsku og virðingu. Ég óttast framtíð grunnskólans ef sveitarfélögin bregðast ekki við skýlausri kröfu grunnskólakennara um laun sem hæfa menntun, álagi og ábyrgð. Ég óttast framtíðina sem nálgast óðfluga. Framtíðina þar sem hæfasti maðurinn í starfið verði sá sem sótti um.

Höfundur er móðir leikskóla- og grunnskólabarna í Reykjavík, menntaður grunnskólakennari og nemi í mannauðsstjórnun á meistarastigi við Háskóla Íslands.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×