Fimmtán ára afmælið varð að gríni sem fór úr böndunum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 29. desember 2016 11:29 Rubi með foreldrum sínum. vísir/afp
Einn maður lést og annar slasaðist í afmælisveislu hinnar fimmtán ára Rubi Ibarra Garcia á mánudag eftir að hafa orðið undir hesti. Tugir þúsunda mættu í veislu stúlkunnar eftir að faðir hennar birti myndband á netinu þar sem hann sagði alla velkomna – en bjóst þó ekki við að boðskortið færi fyrir augu annarra en nánustu aðstandanda. Maðurinn sem lést hét Felix Pena og var 66 ára. Hann varð undir hesti sínum sem atti kappi í kappreiðum í afmælinu, en hinn maðurinn slapp með beinbrot. Ekki er vitað hvers vegna mennirnir tveir hættu sér út á völlinn en málið er í rannsókn lögreglu. Fjölmiðlar ytra hafa birt myndband af því þegar Pena varð undir hestinum en rétt er að vara viðkvæma við myndskeiðinu.Fólk lét útbúa sérstakar andlitsgrímur fyrir afmælið.vísir/afpGrín sem fór úr böndunum Boðskortið var í myndbandsformi og sett inn á YouTube. Ljósmyndari einn ákvað að deila myndbandinu á netinu í gríni og æ fleiri tóku þátt í brandaranum. Fyrr en varði höfðu yfir 800 þúsund manns deilt myndskeiðinu og 1,2 milljónir manna boðað komu sína í partýið. Fyrirtæki og stjörnur sáu sóknarfæri í brandaranum og auglýstu út á hann. Flugfélagið Interjet bauð 30 prósent afslátt af flugferðum til heimabæjar Ibarra fjölskyldunnar, San Luis Potosí í Mexíkó, söngvarar sömdu lag stúlkunni til heiðurs og þá reyndu framleiðendur sjónvarpsþátta að fá stúlkuna til starfa.Allt að 30 þúsund manns í veislunni Fimmtán ára afmælisveislan er stór stund í lífi ungmenna í Mexíkó. Hún svipar til ferminga hér á landi en á þessum degi eru ungmennin tekin í fullorðinna manna tölu. Quinceañera líkt og það kallast á frummálinu. Veislan var haldin í almenningsgarði og var öllu til tjaldað. Hljómsveitir stigu á svið, kappreiðar voru haldnar og boðið var upp á veigar í fljótandi og föstu formi, svo fátt eitt sé nefnt. Verðlaunafé í kappreiðunum var rúmlega 55 þúsund krónur. Tölur um fjölda veislugesta eru á reiki en talið er að þeir hafi verið á milli 20 til 30 þúsund.Bein útsending frá partý-inu Fjölmiðlaumfjöllun í aðdraganda veislunnar var gríðarleg og mættu allir helstu fjölmiðlar landsins á samkomuna, í raun svo margir að afmælisbarnið sjálft komst varla í gegnum allan þann her ljósmyndara og blaðamanna sem vildu ólmir ná myndum og viðtölum við það. Þá var afmælisveislan á nokkrum sjónvarpsstöðvum í beinni útsendingu. #rubixv Esto fue lo que paso ase tiempo en los #XVdeRuby Esperos que todo lo que procede se aga con respeto #Rubi pic.twitter.com/61cX5tPj9c— Daviid López (@Daviid_Lopez15) December 26, 2016 Mikil öryggisgæsla var á svæðinu en borgarstjórinn hafði leitað til næstu bæja og óskað eftir aðstoð við eftirlitið. Fjöldi sjálfboðaliða frá Rauða krossinum, sjúkraflutningamanna og lögreglumanna stóðu vaktina og settar voru upp girðingar umhverfis kappreiðarnar og fólk beðið um að halda sig fjarri vellinum. Tveir menn virtu þær reglur hins vegar að vettugi og fóru inn á völlinn með þeim afleiðingum að annar lést og hinn liggur nú á sjúkrahúsi. Rubi hefur varla haft undan fyrir allri athyglinni. Hún hefur þegar setið fyrir á forsíðu slúðurtímarits og fjölskyldan hefur mætt í fjölmarga sjónvarpsþætti í vikunni. Faðir Rubi-ar fullyrðir að hann hafi aldrei ætlað að bjóða svo mörgum, en af viðtölum að dæma sér hann ekki eftir því, og aldrei kom til greina að aflýsa viðburðinum. Con mi ahijada #Rubí #enlosXVderubi #XvdeRubi #EsShowXVRubi #RubiFest #ruby #XVANOSRUBI #LadyWuuuuu #ladymenudopic.twitter.com/zGfe06e1fy— LadyWuuu (@laloariaswuu) December 27, 2016
Tengdar fréttir Þúsundir mættu í 15 ára afmælisveisluna vegna mistaka pabbans Pabbinn ætlaði að bjóða öllum úr fjölskyldunni og næsta nágrenni. 27. desember 2016 08:58 Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Tvö innbrot í verslanir í dag Innlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira
Þúsundir mættu í 15 ára afmælisveisluna vegna mistaka pabbans Pabbinn ætlaði að bjóða öllum úr fjölskyldunni og næsta nágrenni. 27. desember 2016 08:58